Beint í efni

Deiliskipulag Ásgarðs, skóla og íþróttasvæði. Breyting. Stígur.

Málsnúmer 2011174

Ferill máls

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásgarðs sem gerir ráð fyrir byggingarreit við skiptistöð Strætó sem gerir ráð fyrir starfsmannaaðstöðu, strætóskýli, hjólskýli og viðgerðaraðstöðu.
Umsagnir Strætó og eiganda Bitabæjar um tillöguna liggur fyrir.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskiplags Ásgarðs í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsstjóri fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 3.mgr.44.gr. sömu laga þar sem að jákvæðar umsagnir liggja fyrir.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.