Beint í efni

Lambhagi 20 Sólskáli- Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2105485

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (888). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

10. (888). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi fyrir útgáfu á byggingarleyfi vegna byggingar sólskýlis við núverandi einbýlishús að Lambhaga 9. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2105485)

Bæjarráð Garðabæjar

03

30 (1988). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi fyrir útgáfu á byggingarleyfi vegna byggingar sólskýlis við núverandi einbýlishús að Lambhaga 9. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

9. fundur

Á afgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 21.06.2021 samþykkt að vísa í grenndarkynningu umsókn um byggingarleyfi fyrir byggingu sólskýlis við norðausturenda einbýlishússins við Lambhaga 20. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

7. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir byggingu sólskýlis við norðausturenda einbýlishússins að Lambhaga 20.
Þar sem að ekkert deiliskipulag telst í gildi í Lambhaga er umsókninni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Lambhaga nr. 5,6,7, 18 og 19.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

8. fundur

Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.