Framkvæmdir -bráðabirgða reiðstígur í Urriðakotshrauni.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (889). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir bráðabirgða reiðstíg í Urriðakotshrauni. Framkvæmdin er með samþykki landeiganda. Ingvar Arnarson situr hjá við afgreiðslu málsins. (Mál nr. 2010304)
Bæjarráð Garðabæjar
02
32 (1990). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir bráðabirgða reiðstíg í Urriðakotshrauni. Framkvæmdin er með samþykki landeiganda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir gerð reiðstígs í Urriðakotshrauni og Urriðavatnsdölum til bráðabirgða.
Gert er ráð fyrir legu hans í stæði línuvegar eins og það er sett fram í óverulegri breytingu deiliskipulags Golfvallar í Urriðavatnsdölum sem staðfest var í byrjun mánaðarins. Þess skal gætt að raska eins litlu af hrauninu og kostur er og gera ráð fyrir að sá hluti stígs verði afturkræfur.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við gildandi deiliskipulag m.s.br. og ofangreinda aðgát í sbr. 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags golvallar í Urriðavatnsdölum sem samþykkt var árið 1992.
Breytingin gerir ráð fyrir því að gert verður ráð fyrir 4 metra breiðum stíg frá línuvegi við vesturjaðar Urriðakotshrauns.
Lega hans verður að vegslóða að háspennumastri og frá þeim stað yfir óraskað hraun, c.a. 55 65 metra og þaðan ca 200 m um lúpínugróinn mel að núverandi línuveg. Sá hluti stígsins sem er í hrauninu skal lagður þannig að auðvelt verður að fjarlægja hann og afmá vegsummerki.
Ef stígnum verður fundinn annar staður í breytingum skipulags sem unnið er að skal stígurinn fjarlægður.
Samkomulag er á milli Garðabæjar og landeiganda um að línuvegurinn frá Heiðmerkurvegi um Urriðakotshraun, Sandahlíð og Setbergshlíð að bæjarmörkum við Hafnarfjörð verði nýttur sem reiðstígur til bráðabirgða þar sem núverandi reiðvegur meðfram Flóttamannaleið er ófær vegna framkvæmda við uppbyggingu Urriðaholts.
Að mati skipulagsstjóra telst breytingin óveruleg breyting á deiliskipulagi Golfvallar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annara en landeiganda og sveitarfélags er grenndarkynning felld niður sbr.2.ml.3.mgr.44.gr. sömu laga. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.