Vesturtún 38 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
39. (1997). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Díönu Huld Sigurðardóttur, kt. 010587-3529, leyfi til að breyta þaki, setja kvisti og breyta innra skipulagi parhússins við Vesturtún 38.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
10. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Túnahverfis í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga. Tillagan nær til lóðarinnar Vesturtún 38. Í tillögunni felst að leyfa hækkun á þaki , svalir fari út fyrir byggingarreit og að nýtingarhlutfall verði 0,43 í stað 0,40.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting Skipulags við Vesturtún (Túnahverfi).
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
10. (888). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Vesturtún 38 og 40. Í tillögunni felst að leyfa hækkun á þaki, svalir fari út fyrir byggingarreit og að nýtingarhlutfall verði 0,43. (Mál nr. 2106218)
Bæjarráð Garðabæjar
06
30 (1988). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Vesturtún 38 og 40. Í tillögunni felst að leyfa hækkun á þaki, svalir fari út fyrir byggingarreit og að nýtingarhlutfall verði 0,43.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
9. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna breytingar á húsnæði Vesturtúns 38 og 40 sem nær til hækkunar á þaki og svalir á göflum sem ná út fyrir byggingarreit. Nýtingarhlutfallið fer í 0,43. Málinu vísað í grenndarkynningu.