39. (1997). fundur
39. (1997). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
12.10.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2110056
01
Ásgarður 2 - Umsókn um byggingarleyfi, niðurrif.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að rífa íbúðarhúsið að Ásgarði 2.
Málsnúmer 2106218
02
Vesturtún 38 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Díönu Huld Sigurðardóttur, kt. 010587-3529, leyfi til að breyta þaki, setja kvisti og breyta innra skipulagi parhússins við Vesturtún 38.
Málsnúmer 2106219
03
Vesturtún 40 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sindra Sveini Sigurðssyni, kt. 021290-2899, leyfi til að breyta þaki, setja kvisti og breyta innra skipulagi parhússins við Vesturtún 40.
Málsnúmer 2108043
04
Laufás 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita móttöku og skrá reyndarteikningar fyrir tvíbýlishúsið að Laufási 4.
Málsnúmer 2110027
05
Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi fjárhagsáætlun 2022, dags. 30.09.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022. Gjaldskrá vegna leyfisveitinga, eftirlits og annarrar gjaldskyldrar starfsemi og gjaldskrá vegna hundahalds er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2109208
06
Innritun barna í leikskóla haustið 2021 og fjölgun húseininga fyrir leikskólastarfsemi.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir við leikskólann Mánahvol. Verið er að vinna að frágangi á fjórum deildum og er stefnt að því að taka á móti börnum 1. nóvember nk. Í nóvember verður unnið að frágangi við tvær viðbótardeildir og sal fyrir starfsemina.
Bæjarráð samþykkir heimild til bæjarstjóra til að leita eftir að útvega húseiningar fyrir tvær viðbótardeildir. Leikskólinn verður þá átta deildir fyrir 128 börn.
Rætt um erfiðleika við að manna stöður við leikskólann en verið er að undirbúa sérstakt kynningarátak varðandi auglýsingu starfa almennt á leikskólum bæjarins.
Bæjarstjóri kynnti tillögu um að nýta tímabundið húsnæði Urriðaholtsskóla og að leita leiða til að koma fyrir á svæði í Urriðaholti húseiningum fyrir fjögurra deilda leikskóla til bráðabirgða þar til nýr leikskóli tekur til starfa sumarið 2023. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu ásamt því að leggja fram minnisblað um stöðuna.
Rætt um íbúaþróun almennt og samsetningu íbúa m.t.t. til fjölda barna í leik- og grunnskólum en verið er að vinna spálíkan til að styðjast nánar við.
Málsnúmer 2110025
07
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi endurskoðun fjárhæðar í samstarfsamningi, dags. 28.09.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2110126
08
Bréf Umf. Stjörnunnar um endurnýjun búnaðar í íþróttamannvirkjum ofl., dags. 07.10.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2110026
09
Tilkynningar frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um áætluð framlög árið 2022, dags. 29.09.21.
Lögð fram.
Málsnúmer 2110070
10
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins varðandi leiðbeiningar og fyrirmyndir að samþykkt um stjórn sveitarfélaga, dags. 04.10.21.
Bæjarráð vísar til fyrri samþykkta frá fundi 14. september sl. og felur bæjarstjóra að vinna áfram að undirbúningi tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar þar sem kveðið verði á um heimild til rafrænna funda í bæjarstjórn, nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins.
Málsnúmer 2110117
11
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins varðandi drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1088/2018 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, dags. 06.10.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2110124
12
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar fyrir árið 2022, dags. 05.10.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006130
13
Tillaga að breytingu á reglum um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu á reglum um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum þar sem gert er ráð fyrir 9% hækkun á niðurgreiðslu til dagforeldra.
Málsnúmer 2110123
14
Bréf Kvennaathvarfsins varðandi rekstrarstyrk fyrir árið 2022, dags. 06.10.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Málsnúmer 2110095
15
Bréf ADHD varðandi umsókn um styrk og ósk um samstarf, dags. 01.10.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Málsnúmer 2110107
16
Bréf Alþjóða geðheilbrigðisdagsins varðandi beiðni um styrk, dags. 06.10.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.