Beint í efni

Innritun í leikskóla haust 2021.

Málsnúmer 2109208

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

28. fundur

Upplýst var um stöðu innritunar og vinnu að gerð auglýsingaherferðar sem hófst á mánudaginn 22. nóvember.

Bæjarráð Garðabæjar

02

39. (1997). fundur

Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir við leikskólann Mánahvol. Verið er að vinna að frágangi á fjórum deildum og er stefnt að því að taka á móti börnum 1. nóvember nk. Í nóvember verður unnið að frágangi við tvær viðbótardeildir og sal fyrir starfsemina.

Bæjarráð samþykkir heimild til bæjarstjóra til að leita eftir að útvega húseiningar fyrir tvær viðbótardeildir. Leikskólinn verður þá átta deildir fyrir 128 börn.

Rætt um erfiðleika við að manna stöður við leikskólann en verið er að undirbúa sérstakt kynningarátak varðandi auglýsingu starfa almennt á leikskólum bæjarins.

Bæjarstjóri kynnti tillögu um að nýta tímabundið húsnæði Urriðaholtsskóla og að leita leiða til að koma fyrir á svæði í Urriðaholti húseiningum fyrir fjögurra deilda leikskóla til bráðabirgða þar til nýr leikskóli tekur til starfa sumarið 2023. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu ásamt því að leggja fram minnisblað um stöðuna.

Rætt um íbúaþróun almennt og samsetningu íbúa m.t.t. til fjölda barna í leik- og grunnskólum en verið er að vinna spálíkan til að styðjast nánar við.

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

26. fundur

Leikskólanefnd var upplýst um stöðu innritunar i leikskólum og skort á starfsfólki. Leikskólafulltrúi upplýsti um fyrirhugaðar hugmyndir til að laða að starfsfólk til vinnu á leikskólum.