26. fundur
26. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
22.09.2021
Kl. 08:30 - 10:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - aðalmaður
- Magnús Kristinn Einarsson - varamaður
Starfsmenn
- Halldóra Pétursdóttir - leikskólafulltrúi
- Hjördís Guðrún Ólafsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Aðalheiður Eva Viktorsdóttir - fulltrúi starfsmanna
- Linda Guðmundsdóttir Lyngmo - fulltrúi foreldra
Ritari
- Halldóra Pétursdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2108641
01
Skýrsla um styrking leikskólastigsins.
Lögð fram til kynningar skýrsla starfshóps um styrkingu leikskólastigsins.
Málsnúmer 2001218
02
Endurgerð menntastefnu
Upplýst var um stöðu við endurgerð menntastefnu áframhaldandi vinnu.
Málsnúmer 2106128
03
Aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti.
Lagt fram og rætt. Farið var um þá ferla sem eru innan Garðabæjar.
Málsnúmer 2108656
04
Auglýsing um breytingu á aðalnámskrá leikskóla
Kynnt var breyting á 13. gr. laga um leikskóla sem miðar að því að mæta betur þörfum barna með annað móðurmál en íslensku og öðrum fjöltyngdum börnum í leikskólum. Leikskólanefnd leggur áherslu á að leikskólar vinni eftir fjölbreyttum leiðum til að koma til móts við þarfir barna og foreldra af erlendum uppruna. Leikskólanefnd mun setja málið á dagskrá síðar í vetur
Málsnúmer 2109208
05
innritun í leikskóla haust 2021.
Leikskólanefnd var upplýst um stöðu innritunar i leikskólum og skort á starfsfólki. Leikskólafulltrúi upplýsti um fyrirhugaðar hugmyndir til að laða að starfsfólk til vinnu á leikskólum.
Málsnúmer 2109209
06
Mánahvoll - framkvæmdaáætlun
Upplýst var um framkvæmdir við Mánahvoli en þær eru á áætlun.
Málsnúmer 2109083
07
Tilfærsla á skipulagsdegi
Samþykkt var beiðni leikskólans Sunnuhvols um tilfærslu á skipulagsdegi frá 11. janúar til 25. maí.
Málsnúmer 2105739
08
Tilfærsla á skipulagsdegi
Samþykkt var beiðni leikskólans Lundabóls um tilfærslu á skipulagsdegi frá 11. janúat til 22 apríl.