Beint í efni

Kirkjulundur 17 - Umsókn um byggingarleyfi - Deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2108104

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

10. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar - Þjónustuhverfi sem nær til lóðarinnar Kirkjulundur 17 í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits að lóðarmörkum fyrir og kalda geymslu.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Miðbæjar-Þjónustuhverfi.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

10. (888). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

10. (888). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar - efra svæði samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Kirkjulund 17. Í tillögunni felst að leyfa viðbyggingu fyrir kalda geymslu. (Mál nr. 2108104)

Bæjarráð Garðabæjar

05

30 (1988). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar - efra svæði samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Kirkjulund 17. Í tillögunni felst að leyfa viðbyggingu fyrir kalda geymslu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Á fundi skipulagsnefndar þann 27.05.2021 var lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerði ráð fyrir viðbyggingu við verslunar- og þjónustuhúsnæði sem hýsa geymslur sem tengjast starfseminni. Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi þeirri tillögu í grenndarkynningu. Nú er lögð fram beiðni um breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar - Þjónustuhverfi fyrir Kirkjulund 17 fyrir skorstein og kalda geymslu. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókninni í grenndarkynningu. Grenndarkynningin skal ná til Kirkjulundar 11, 13, 15 og 19.