Beint í efni

Blikanes 9 - Deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2102539

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (888). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Blikanes 9. Í tillögunni er gert ráð fyrir viðbótar bílastæði í norðvesturhorni lóðarinnar. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2102539)

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

10. (888). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

30 (1988). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Blikanes 9. Í tillögunni er gert ráð fyrir viðbótar bílastæði í norðveturhorni lóðarinnar. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

9. fundur

Lögð fram að nýju umsókn um deiliskipulagsbreytingu fyrir Blikanes 9 fyrir viðbótar bifreiðarstæði í norðvesturhorni lóðarinnar að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

Bæjarráð Garðabæjar

05

23. (1981). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um gerð viðbótar bifreiðastæðis í norðausturhorni lóðarinnar við Blikanes 9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna öllum eigendum lóða við Blikanes.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir bílastæði í norð-austurhorni lóðar að götu.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar skv 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal öllum eigendum í Blikanesi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

6. fundur

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði auka bílastæði í norðausturhorni lóðar auk þeirra sem eru framan við bílageymslu.
Fjögur dæmi þess eru í götunni að fleiri en 3 bílastæði hafa verið gerð og sum þeirra ekki fyrir framan bílageymslur. Engin þeirra hefur hlotið skipulagsferli en ljóst er að breytingar sem þessar kalla á deiliskipulagsbreytingu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir viðbótar bílastæði að götu í vesturhluta lóðar.
Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.