40. (1998). fundur
40. (1998). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
19.10.2021
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025)- Allir bæjarfulltrúar boðaðir.
Lúðvík Hjalti Jónsson. fjármálastjóri fór yfir yfirlit málaflokka og deilda samkvæmt fyrstu drögum að fjárhagsáætlun fyrir árið 2022.
Lögð fram fyrstu drög að framkvæmdayfirliti fyrir árin 2022-2025.
Umræða var um drögin. Frumvarp að fjárhagsáætlun verður lagt fram á næsta fundi bæjarráðs 26. október nk.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Harpa Þorsteinsdóttir og Jóna Sæmundsdóttir, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagkrárlið.
02
Bréf samtaka sveitarfélaga varðandi áfangastaða og markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, dags. 11.10.21.
Á fund bæjarráðs mætti Inga Hlín Pálsdóttir, verkefnastjóri og kynnti tillögur um fjármögnun og tekjumódel með hagaðilum varðandi stofnun áfangastaða- og markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Næstu skref eru að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taki afstöðu til verkefnisins stofnunar og fjármögnunar.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Harpa Þorsteinsdóttir og Jóna Sæmundsdóttir, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagkrárlið.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar sem nær til norðurhlíðar Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytinga og samruna á landnotkunarreitum 5.04 Vþ og 5.08 Vþ sem verður eftir breytingu 5.04 Vþ og minnkar úr 9,6 ha í 3,5 ha. Landnotkunarreitur 5.05.Íb stækkar úr 60,8 ha í 66,9 ha eða um 6,1 ha. Samhliða er lögð fram breyting á deiliskipulagi.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að breyta lóðinni við Urriðaholtsstræti 9 úr lóð fyrir verslun og þjónustu í íbúðarhúsalóð fyrir 50 ára og eldri.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna hækkunar nýtingarhlutfalls.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir hækkun nýtingarhlutfalls.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Sunnakri 4.
Lögð fram.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Frjóakur 9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna stækkunar kjallararýmis einbýlishússins að Frjóakri 9.
Tillagan var grenndarkynnt og komu fram athugasemdir og verður þeim sem þær gerðu tilkynnt um niðurstöðu málsins að lokinna afgreiðslu bæjarstjórnar.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að vinnureglum um veggi og girðingar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um vinnureglur varðandi veggi og girðingar.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu vegna endurskoðunar á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024.
Lögð fram.
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Smiðsbúð 3.
Lögð fram.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Stekkjarflöt 9.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flatahverfis vegna lóðarinnar við Stekkjarföt 9. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
12
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi tillögu að fjárhagsáætlun vegna verkefna samráðshóps um vatnsvernd og vatnsnýtingu fyrir árið 2022, dags. 12.10.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
13
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi breytingu á reglugerð 1212/2015 vegna reikningsskil sveitarfélaga, dags. 11.10.21.
14
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi viðmiðunartöflu fyrir fulltrúa í sveitarstjórnum, dags. 14.10.21.
15
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi þátttöku og framlög til stafræns samstarfs sveitarfélaga 2022, dags. 07.10.21.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefnum er varðar samstarf sveitarfélaga um stafræna umbreytingu og vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Fylgiskjöl
16
Bréf Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins varðandi fjárhagsáætlun skíðasvæðanna fyrir árið 2022.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Fylgiskjöl
17
Umsókn um leyfi fyrir utanvegahlaup í upplandinu.
Bæjarráð tekur jákvætt í umsókninni og vísar henni til umfjöllunar umhverfisnefndar