Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytinga á landnotkunarreitum deiliskipulagssvæðis 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (2030). fundur
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36. gr. laganna tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er nær til svæðis í norðurhlíðum Urriðaholts. Um er að ræða eftirfarandi breytingar á landnotkunarreitum. Reitur 5.04 Vþ (8 ha) minnkar og rennur saman við 5.08 (1,6) Vþ og kallast eftir breytingu 5.04 Vþ (3,5 ha). Heildarminnkun á svæði sem ætlað er fyrir verslun og þjónustu er um 6,1 ha. Ákvæði breytast þannig að gert verður ráð fyrir að atvinnuhúsnæði á reitnum næst gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Holtsvegar en íbúðarbyggð eða atvinnuhúsnæði fjær gatnamótunum til austurs. Reitur 5.05 Íb stækkar til norðvesturs úr 57,3 ha í 63,4 ha eða um 6,1 ha. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Umsagnir umsagnaraðila liggja fyrir en þær gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til norðurhlíðar Urriðaholts að lokinni auglýsingu.
Tillagan gerir ráð fyrir því að eftirfarandi landnotkunarreitir breytist sem hér segir: Reitur 5.04 Vþ (8 ha) minnkar og rennur saman við 5.08 (1,6) Vþ og kallast eftir breytingu 5.04 Vþ (3,5 ha). Heildar minnkun á svæði ætlað Verslun og þjónustu um 6,1 ha. Ákvæði breytast þannig að gert verður ráð fyrir að atvinnuhúsnæði á reitnum næst gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Holtsvegar blandast íbúðarbyggð fjær gatnamótunum. Reitur 5.05 Íb stækkar til norðvesturs úr 57,3 ha í 63,4 ha eða um 6,1 ha.
Samhliða er lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem nær til lóðarinnar Urriðaholtsstræti 9.
Engar athugasemdir bárust innan tilskilins frests. Umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Umsagnir kalla ekki á breytingar á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 32.gr.skipulagslaga og skal senda hana til athugunar og staðfestingar hjá Skipulagsstonun
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
2. (898). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 breytingu á reitum 5.04 Vþ, 5. 08 Vþ og 5.05 Íb. (Mál nr. 2110166)
Samhliða er lagt til að auglýst verði breyting á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.
Bæjarráð Garðabæjar
04
4. (2011). fundur
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefnda að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 breytingu á reitum 5.04 Vþ, 5. 08 Vþ og 5.05 Íb.
Samhliða er er lagt til að auglýst verði breyting á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.
Sara Dögg Svanhildardóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins og leggur fram eftirfarandi bókun.
„Fyrir hönd Garðabæjarlistans kalla ég eftir frekari gögnum til að styðjast við ákvörðun á breytingu á skipulagi með þeim hætti að breyta atvinnusvæði í íbúabyggð á byggingarreit við Urriðaholtsstræti 9, eins og verið er að leggja hér til.
Það er gríðarlega mikilvægt að vita hver stefna Garðabæjar er í atvinnuuppbyggingu sveitarfélagsins.
Hér er verið að leggja fram tillögu að breytingu á uppbyggingu í hverfi sem er að vaxa með áherslu á þjónustu við íbúa hverfisins. Atvinnuuppbygging er farin að taka á sig mynd og hverfið stefnir í fyrirmyndar 15 mínútna hverfi sem gerir það heilsueflandi og framsækið. Að fjölga atvinnutækifærum með því að laða enn frekar til okkar öfluga starfsemi fjölbreyttra fyrirtækja gerir hverfið sjálfbærara og styrkir tekjustofna.
Til þess að geta tekið afstöðu til þessara áforma vantar öll gögn til styðja við forsendur þessara breytinga.
Til að mynda er skortur á hágæða skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og því kalla ég eftir frekari greiningu á stöðunni áður en tekin er ákvörðun um þessar breytingar á uppbyggingu byggingareitar við Urriðaholtsstræti 9.“
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til norðurhlíðar Urriðaholts.
Tillagan gerir ráð fyrir því að eftirfarandi landnotkunarreitir breytist sem hér segir: Reitur 5.04 Vþ (8 ha)minnkar og rennur saman við 5.08(1,6) Vþ og kallast eftir breytingu 5.04 Vþ (3,5 ha). Heildar minnkun á svæði ætlað Verslun og þjónustu um 6,1 ha. Ákvæði breytast þannig að gert verður ráð fyrir að atvinnuhúsnæði á reitnum næst gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Holtsvegar blandast íbúðarbyggð fjær gatnamótunum. Reitur 5.05 Íb stækkar til norðvesturs úr 60,8 ha í 66,9 ha eða um 6,1 ha.
Samhliða er lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem nær til lóðarinnar Urriðaholtsstræti 9. Tillagan hefur verið kynnt fulltrúum húsfélagsins að Urriðaholtsstræti 14-20.
Engar ábendingar hafa borist.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal tillögu til athugunar hjá Skipulagsstofnun áður en hún verður auglýst.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
14. (892). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytinga og samruna á landnotkunarreitum 5.04 Vþ og 5.08 Vþ sem verður eftir breytingu 5.04 Vþ og minnkar úr 9,6 ha í 3,5 ha. Landnotkunarreitur 5.05.Íb stækkar úr 60,8 ha í 66,9 ha eða um 6,1 ha. Samhliða er lögð fram breyting á deiliskipulagi.“ (Mál nr.2110166)
Bæjarráð Garðabæjar
07
40. (1998). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytinga og samruna á landnotkunarreitum 5.04 Vþ og 5.08 Vþ sem verður eftir breytingu 5.04 Vþ og minnkar úr 9,6 ha í 3,5 ha. Landnotkunarreitur 5.05.Íb stækkar úr 60,8 ha í 66,9 ha eða um 6,1 ha. Samhliða er lögð fram breyting á deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til norðurhlíðar Urriðaholts.
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir ráðgjafi hjá Alta og Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf gerðu grein fyrir aðalskipulags-og deiliskipulagstillögunum.
Tillagan gerir ráð fyrir því að eftirfarandi landnotkunarreitir breytist sem hér segir:
Reitur 5.04 Vþ (8 ha)minnkar og rennur saman við 5.08(1,6) Vþ og kallast eftir breytingu 5.04 Vþ (3,5 ha). Heildar minnkun á svæði ætlað Verslun og þjónustu um 6,1 ha. Ákvæði breytast þannig að gert verður ráð fyrir að atvinnuhúsnæði á reitnum næst gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Holtsvegar blandast íbúðarbyggð fjær gatnamótunum.
Reitur 5.05 Íb stækkar til norðvesturs úr 60,8 ha í 66,9 ha eða um 6,1 ha.
Samhliða er lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags.
Lagðar fram umsagnir sem bárust vegna verkefnislýsingar sem auglýst var í sumar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30.gr.skipulags-og byggingarlaga nr.123/2010.