Frjóakur 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
20. (2027). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Margréti Írisi Ármann Baldursdóttur, kt. 060174-4079, leyfi fyrir breytingum á tæknirými og ísetningu glugga á austurhlið í kjallara einbýlishússins að Frjóakri 9.
Björg Fenger vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
14. (892). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna stækkunar kjallararýmis einbýlishússins að Frjóakri 9.
Tillagan var grenndarkynnt og komu fram athugasemdir og verður þeim sem þær gerðu tilkynnt um niðurstöðu málsins að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar.“ (Mál nr. 2007640)
Björg Fenger, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
04
40. (1998). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna stækkunar kjallararýmis einbýlishússins að Frjóakri 9.
Tillagan var grenndarkynnt og komu fram athugasemdir og verður þeim sem þær gerðu tilkynnt um niðurstöðu málsins að lokinna afgreiðslu bæjarstjórnar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
12. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Akra sem nær til lóðarinnar Frjóakur 9 að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Tillagan gerir ráð fyrir því að flatarmál neðri hæðar húss (kjallara) sé stærri en 70 % að flatarmáli aðalhæðar.
Innréttað hefur verið herbergi í djúpum kjallara með gólfsíðum gluggum og svæði á lóð í sömu hæð. Áður hafði verið veitt leyfi fyrir kjallararýminu sem tæknirými án glugga. Var sú tillaga samþykkt sem frávik frá deiliskipulagi. Gluggar á umræddu rými breyta þeim forsendum.
Skipulagsnefnd telur að sú breyting að heimila að kjallari sé stærri en sem nemur 70 % af flatarmáli geti talist óveruleg breyting enda grenndaráhrif þeirrar breytingar lítil í þessu tilfelli. Fleiri dæmi eru um að það í hverfinu að breyting á þessu ákvæði sé metin óveruleg. Reynslan sýnir að ferli óverulegra breytinga með grenndarkynningu er síst líklegra til að fara fram hjá grennd en ferli verulegra breytinga með auglýsingu.
Við samþykkt byggingarleyfis var húsið metið í samræmi við deiliskipulag og húsið byggt samkvæmt því.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu deiliskipulags Akra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
4. fundur
Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
12. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu ásamt athugsemdum sem borist hafa. Vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
13. (872). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,GE) tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um stækkun og opnun á kjallararými o.fl. í einbýlishúsinu að Frjóakri 9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Frjóakurs 7 og 10 og Byggakurs 18, 20, 22 og 24. (Mál nr.2007640)
Þrír sitja hjá (SDS,IA,VÖÁW).
Björg Fenger, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
09
36. (1944). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um stækkun og opnun á kjallararými o.fl. í einbýlishúsinu að Frjóakri 9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Frjóakurs 7 og 10 og Byggakurs 18, 20, 22 og 24.
Lagt fram bréf Ólafs Kjartanssonar, lögmanns, dags. 14. september 2020 þar sem gerðar eru athugasemdir við afgreiðslu skipulagsnefndar að tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi.
Björg Fenger, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir því að flatarmál neðri hæðar húss (kjallara) sé stærri en 70 % að flatarmáli aðalhæðar.
Innréttað hefur verið herbergi í djúpum kjallara með gólfsíðum gluggum og svæði á lóð í sömu hæð. Áður hafði verið veitt leyfi fyrir kjallararýminu sem tæknirými án glugga. Var sú tillaga samþykkt sem frávik frá deiliskipulagi. Gluggar á umræddu rými breyta þeim forsendum.
Tillagan metin sem óveruleg breyting deiliskipulags Akra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Frjóakurs 7 og 10 og Byggakurs 18, 20, 22 og 24.