Deiliskipulag Silfurtúns. Deiliskipulagsbreyting v. nýtingarhlutfalls.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (2023). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Silfurtún er varðar hækkun á nýtingarhlutfalli lóða verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
5. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Silfurtúns að lokinni auglýsingu í samræmi við 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir því að nýtingarhlutfall lóða breytist úr 0,3 í 0,35. Þar sem hæðarmunur á lóð býður upp á útfærslu húss með kjallara verði hámarks nýtingarhlutfall 0,45.
Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Silfurtúns í samræmi við 41.grein Skipulagslaga nr.123/2010.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
2. (898). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall breytist úr 0,3 í 0,35. Vekja skal athygli á tillögunni með því að senda dreifibréf í öll hús í Silfurtúni. (Mál nr. 2108423)
Baldur Ólafur Svavarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
05
4. (2011). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall breytist úr 0,3 í 0,35. Vekja skal athygli á tillögunni með því að senda dreifibréf í öll hús í Silfurtúni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir því að nýtingarhlutfall lóða breytist úr 0,3 í 0,35. Þar sem hæðarmunur á lóð býður upp á útfærslu húss með kjallar verði hámarks nýtingarhlutfall 0,45.
Tillagan hefur verið forkynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar ábendingar hafa borist.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Vekja skal athygli á auglýsingunni með því að senda dreifibréf á alla íbúa í Silfurtúni.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
14. (892). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir hækkun nýtingarhlutfalls.“ (Mál nr. 2108423)
Bæjarráð Garðabæjar
08
40. (1998). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir hækkun nýtingarhlutfalls.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Silfurtúns sem gerir ráð fyrir hækkun nýtingarhlutfalls.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins í nefndinni.