Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Þórsgrund.

Málsnúmer 2105133

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

35. (1993). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í í framkvæmdir við gatnagerð við Þórsgrund.

Gleipnir ehf. kr. 141.000.000
Klapparverk ehf. kr. 126.733.549
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 114.527.350
Snókur ehf. kr. 112.924.599
Ljósaþing ehf og Stálborg ehf kr. 139.700.108
Stéttafélagið ehf. kr. 160.795.001

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Snóks ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

9. (887). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Þórsgrund. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2105133)

Bæjarráð Garðabæjar

03

20. (1978). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Þórsgrund. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð götu og veitulagna í götunni Þórsgrund sem tengd verður hringtorgi á Vífilsstaðavegi gengt Sjálandsskóla.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og framlögð gögn.