Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi á lóðinni við Þorrasali 37 í Kópavogi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
20. (1978). fundur
Málið varðar tilkynningu frá Kópavogi um samþykkt bæjarstjórnar Kópavogs á breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar við Þorrasali 37.
Bæjarráð samþykkir að bókun skipulagsnefndar verði send Kópavogsbæ.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
7. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar vísar til bókunar vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem náði til sömu lóðar og var send inn sem athugasemd við tillöguna. Ekki var tekið tillit til athugasemdarinnar við afgreiðslu málsins smbr.framlagt erindi Kópavogsbæjar dags.14.október 2020.
Bókun Skipulagsnefndar 27.ágúst 2020 var svohljóðandi:
"Lög fram tillaga að breytingu deiliskipulagi Hnoðraholts og Smalaholts í Kópavogi. Breytingin nær til lóðarinnar Þorrasalir 37 og gert ráð fyrir því að lóðin stækki til vestur sem nemur opnu svæði sem er vestan við lóðina að bæjarmörkum að Garðabæ. Byggingarreitur lóðarinna stækkar einnig.
Skipulagsnefnd gerir athugasemd við að opið grænt svæði sé skert og minnir á að lítið er um opin svæði í deiliskiplagi Hnoðraholts í Kópavogi. Í greinargerð deiliskipulags segir um opin svæði: "Deiliskipulagssvæðið liggur að stóru opnu svæði til austurs og suðurs. Inni í hverfinu verða græn svæði sem nýtast fyrir gönguleiðir, leiksvæði og trjárækt. Opin svæði til leikja og útiveru innan deiliskipulagsins þ.e. grenndarvellir, trjáræktarsvæði,ásamt leikskóla tengjast með stígum."
Skiplagsnefnd bendir á að þau opnu grænu svæði sem deiliskipulagið getur um eru Garðabæjarmegin sveitarfélagsmarka og þessu hefur verið gætt í tilögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem nú er í auglýsingu að græn svæði séu milli núverandi byggðar í Kópavogi og hinnar nýju byggðar Garðabæjarmegin. Því er eðlilegt að Kópavogur sjái til þess að þau fáu svæði sem eru opin Kópavogsmegin séu óskert. "