Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna íbúðarbyggðar við Þorraholt.

Málsnúmer 2105498

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

4. (2011). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna íbúðarbyggðar við Þorraholt. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda þegar fyrir liggur samningur við framkvæmdaaðila um uppbyggingu svæðisins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til íbúðarbyggðar við Þorraholt að lokinni auglýsingu.
Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreitum sem hafa það að markmiði að bæta búsetugæði íbúðanna. Byggingarmagn breytist ekki en fjöldi íbúða getur orðið á bilinu 180-220 í stað 200 áður.
Fjarlægð byggingareita næst núverandi byggð í Hnoðraholti breytist ekki.
Lagðar fram athugasemdir gatnahönnuðar sem leggur til smávægilegar breytingar á tillögunni vegna aðlögunar byggðar að landslagi.
Lögð fram umsögn Vegagerðarinnar sem gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim breytingum sem gatnahönnuður leggur til.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

17. (895). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna íbúðarhúsalóða við Þorraholt. Fallið er frá gerð lýsingar og forkynningar samkvæmt heimild í 2. ml. 1. mgr. 43. gr. og 3. ml. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga. (Mál nr. 2105498)

Bæjarráð Garðabæjar

04

46. (2004). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna íbúðarhúsalóða við Þorraholt. Fallið er frá gerð lýsingar og forkynningar samkvæmt heimild í 2. ml. 1. mgr. 43. gr. og 3. ml. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

14. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til íbúarbyggðar í Þorraholti.
Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreitum sem hafa það að markmiði að bæta búsetugæði íbúðanna. Byggingarmagn breytist ekki en fjöldi íbúða getur orðið á bilinu 180-220 í stað 200 áður.
Fjarlægð byggingareita næst núverandi byggð í Hnoðraholti breytist ekki.
Tillagan hefur verið kynnt fulltrúum íbúa í Hnoðraholti.
Fallið er frá verkefnislýsingu og forkynningu í samræmi við 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010 þar sem allar forsendur eru til staðar í aðalskipulagi sem er sett fram sem rammahluti.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 41. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

8. fundur

Lögð fram drög að tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til fjölbýlishúsa við Þorraholt. Tillagan er unnin af Arkþing á vegum uppbyggingaraðlia.
Drögum vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og til kynningar í samráðshópi Garðabæjar og íbúa í Hnoðraholti.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

7. fundur

Skipulagstjóri kynnti hugmyndir Arkþings um breytingar á deiliskipulagi við sunnavert Þorraholt. Tillagan er unnin á vegum landeiganda. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun íbúða. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.