Eskiás, br á dsk Ása og Grunda
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (889). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðanna við Eskiás 2, 4 og 6, samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær. (Mál nr. 2102023)
Bæjarráð Garðabæjar
02
32 (1990). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðanna við Eskiás 2, 4 og 6 samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga . Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðanna Eskiás 2,4 og 6 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir því að hæðir húsa við Eskiás 2, 4 og 6 lækki um eina hæð og heimilað verði að fjölga íbúðum í öðrum húsum sem nemur fækkun íbúða vegna lækkunar um hæð. Hámarkshæðir annarra húsa verða óbreyttar. Byggingarreitir lóðanna nr. 8 og 10 breytast þannig að þar verða lokaðir innigarðar. Heildarfjöldi íbúða verður óbreyttur eða 276 íbúðir.
Tillagan var í auglýsingu frá 10.mars til 21.apríl 2021. Alls barst 1 erindi með athugasemdum við tillöguna frá eigendum að Lyngási 13 og 15.
Tillagan var lögð fyrir skipulagsnefnd ásamt innsendum athugasemdum sem var vísað til úrvinnslu.
Farið hefur verið yfir innsendar athugasemdir af tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjafa hjá Batteríinu ehf. Tillaga að greinargerð þar sem fram koma svör Garðabæjar lögð fram.
Ekki er talin ástæða til að breyta tillögunni vegna atriða sem athugasemdar eru gerðar við enda varða þær í flestum tilfellum ekki breytingartillöguna.
Erindi með athugasemdum er vísað til úrvinnslu í fyrirhugaðri endurskoðun skipulags á Lyngássvæði og Hafnarfjarðarvegar.
Í fyrirhugaðri endurskoðun skipulags og uppbyggingar á svæðinu mun skipulagsnefnd leggja áherslu á að móta stefnu og áætlun sem sátt er um meðal Garðbæinga og eigenda fasteigna á svæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkir auglýsta tillögu óbreytta sem breytingu deiliskipulags Ása-og Grunda í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Samþykkt er einnig framlögð greinargerð með svörum við athugasemdum.
Sólveig Helga Jóhannsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóða við Eskiás og hefur verið í auglýsingu.
Lagt fram minnisblað deiliskipulagshöfundar með viðbrögðum við innsendum athugasemdum sem einnig eru lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingi deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóða við Eskiás að lokinni auglýsingu. Athugasemd hefur borist frá lóðarhöfum Lyngáss 13 og 15. Tillögu og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
3. (881). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga sem gerir ráð fyrir að hæðir húsa við Eskiás 2, 4 og 6 lækki um eina hæð og heimilað verði að fjölga íbúðum í öðrum húsum sem nemur fækkun íbúða vegna lækkunar um hæð. Hámarkshæðir annarra húsa verða óbreyttar. Byggingarreitir lóðanna nr. 8 og 10 breytast þannig að þar verða lokaðir innigarðar. Heildarfjöldi íbúða verður óbreyttur eða 276 íbúðir. (Mál nr. 2102023)
Bæjarráð Garðabæjar
07
6. (1964). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga sem gerir ráð fyrir að hæðir húsa við Eskiás 2, 4 og 6 lækki um eina hæð og heimilað verði að fjölga íbúðum í öðrum húsum sem nemur fækkun íbúða vegna lækkunar um hæð. Hámarkshæðir annarra húsa verða óbreyttar. Byggingarreitir lóðanna nr. 8 og 10 breytast þannig að þar verða lokaðir innigarðar. Heildarfjöldi íbúða verður óbreyttur eða 276 íbúðir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir því að hús nr. 2, 4 og 6 við Eskiás verði lækkuð um eina hæð og að heimilað verði að flytja heimildir um fjölda íbúða frá þeim húsum yfir í önnur hús við Eskiás. Hámarkshæðir annarra húsa verði óbreyttar samkvæmt tillögunni. Byggingarreitir lóða nr. 8 og 10 breytast þannig að það myndast lokaðir inngarðar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi 1. mgr. 43. gr og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.