Beint í efni

Kirkjulundur 17 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2010451

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

3. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

1. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn um viðbyggingu sem gerir ráð fyrir því að hún er 20 cm hærri en grenndarkynnt gögn. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað þetta atriði varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarráð Garðabæjar

03

46. (2004). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fjölráði ehf., kt. 510602-2930, leyfi fyrir uppsetningu reykháfs við atvinnuhúsnæðið við Kirkjulund 17.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við verslunar-og þjónustuhúsnæðis (Dýralæknastofur)sem hýsa á geymslur sem tengjast starfseminni.
Skipulagsnefnd leggur til að sótt verði um breytingu deiliskipulags Miðbæjar-Þjónustuhverfis og gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi þeirri tillögu til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á skipulagsskilmálum sem gilda fyrir lóðina við Kirkjulund 17. Starfsemi með brennsluofn fyrir dýrahræ og staðsetning gáma á lóð með metan kútum verður ekki talin vera í samræmi við yfirbragð og eðli starfsemi á miðsvæði eins og svæðið er skilgreint í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. (Mál nr. 2010451)

Bæjarráð Garðabæjar

06

50. (1958). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á skipulagsskilmálum sem gilda fyrir lóðina við Kirkjulund 17. Starfsemi með brennsluofn fyrir dýrahræ og staðsetning gáma á lóð með metan kútum verður ekki talin vera í samræmi við yfirbragð og eðli starfsemi á miðsvæði eins og svæðið er skilgreint í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

13. fundur

Umsókn Fjölráðs ehf um byggingarleyfi lögð fram sem gerir m.a. ráð fyrir brennsluofni fyrir dýrahræ ásamt skorsteini og stæði fyrir metangasgeyma á lóð.
Skipulagsnefnd telur að starfsemi með brennsluofn fyrir dýrahræ og staðsetning gáma á lóð með metan kútum geti ekki verið í samræmi við yfirbragð og eðli starfsemi miðsvæðis eins og svæðið er skilgreint í kafla 3.4. í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.
Skipulagsnefnd telur því að samkvæmt gildandi deiliskipulagi og aðalskipulagi séu ekki fyrir hendi lögmæt skilyrði til að gefa út byggingarleyfi fyrir brennsluofn fyrir dýrahræ ásamt reykháfi og stæði fyrir metangasgeyma á lóðinni við Kirkjulund 17.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

12. fundur

Umsókn um byggingarleyfi lögð fram sem gerir m.a. ráð fyrir brennsluofni fyrir dýrahræ ásamt skorsteini og stæði fyrir metangasgeyma.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.