Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögur að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs og tillögu að deiliskipulagi.

Málsnúmer 2101165

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

9. (1967). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

3. fundur

Bjarki Valberg umhverfisfulltrúi og Auður D.Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi hjá Skipulagsdeild Kópavogs gerðu grein fyrir tillögum að breyttu aðalskipulagi og deiliskipulagi Miðbæjar Kópavogs, Hamraborgar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar leggur áherslu á að tillögurnar taki tillit til þess með hvaða hætti leiðir Borgarlínunnar til austurs og vesturs og norðurs og suðurs tengist saman á skilvirkan og skynsamlegan hátt og þá í sömu hæðarlegu. Einnig leggur nefndin áherslu á að vel unnar umferðarspár- og greiningar verði lagðar til grundvallar með það að markmiði að ekki verði dregið úr afkastagetu Hafnarfjarðarvegar með fyrirhugaðir uppbyggingu í Miðbæ Kópavogs.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Tillögur að breytingum Aðalskipulags Kópavogs og deiliskipulags Hamraborgar lagðar fram. Vísað til sérstaks fundar skipulagsnefndar þar sem tillögur um framkvæmd Borgarlínu verða kynntar og ræddar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

2. (1960). fundur

Bæjarráð vísar tilkynningunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.