Beint í efni

18. (896). fundur

16.12.2021
Bæjarstjórn Garðabæjar

18. (896). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

16.12.2021

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Gunnar Einarsson
  • Guðfinnur Sigurvinsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Almar Guðmundsson, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 2. desember 2021 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2112004F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 7/12 ´21.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Vetrarmýri.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Vetrarmýri.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Vetrarmýri.

Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2112013F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 14/12 ´21.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., tilboð í byggingarrétt lóða við Kumlamýri og 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 16. tl., bréf Vegagerðarinnar varðandi yfirfærslu veghalds frá Vegagerðinni til Garðabæjar, dags. 06.12.21.

Ingvar Arnarson, ræddi 16. tl., bréf Vegagerðarinnar varðandi yfirfærslu veghalds frá Vegagerðinni til Garðabæjar og 5. tl., útboðsskilmála vegna innkaupa á þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar. Ingvar lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn vill að unnið verði eftir því sem búið er að samþykkja af bæjarstjórn þ.e.a.s. að öll vinna iðnaðarmanna fyrir Garðabæ verði boðin út. Þetta ferli hefur tekið allt of langan tíma og nauðsynlegt að klára sem allra fyrst.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., tilboð í byggingarrétt lóða við Kumlamýri, 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn og 5. tl., útboðsskilmála vegna innkaupa á þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 11. tl., drög að samkomulagi við Urriðaholt ehf. um lok uppbyggingar byggðar í Urriðaholti.

Gunnar Einarsson, ræddi 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

2.11 - 2112146 - Drög að samkomulagi við Urriðaholt ehf. um lok uppbyggingar byggðar í Urriðaholti - Viðauki XI.

Bæjarstjórn samþykkir samkomulag við Urriðaholt ehf. um lok uppbyggingu byggðar í Urriðaholti. (mál nr. 2112146)

Fylgiskjöl

2.2 - 2006130 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 Viðaukar nr. 6, nr. 7 og nr 8.

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 6, nr. 7 og nr. 8 við fjárhagsáætlun 2021 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. (Mál nr. 2006130)

Viðauki 6.

Leikskólar. .
Eftirfarandi þarf að bæta við leikskóla vegna:
Undirbúningstíma faglærðra skv. kjarasamningum (aukin mönnun) langtímaveikinda, lækkunar tekna vegna niðurfellingar á leikskólagjöldum vegna Covid og hækkunar rekstrartengdra liða vegna covid.

Leikskóladeild Flataskóla 8.000.000 04118-
Lundaból 14.000.000 04114-
Sunnuhvoll 10.000.000 04115-
Kirkjuból 5.000.000 04113-
Leikskólinn Krakkakot 6.000.000 04119-
Hnoðraholt Hjalli 15.000.000 04168-
Litlu Ásar 10.000.000 04165-
Leikskólinn Ásar 10.000.000 04161-
Leikskólinn Sjáland 10.000.000 04116-

Dagvistargjöld
Vegna námsvistargjalda leikskólabarna
í öðrum sveitarfélögum
og einkaskólum þarf að bæta við um 40 mkr.
við fjárhagsáætlun 40.000.000 04167-4364
Leikskólar og dagvistargjöld samtals 128.000.000

Grunnskólar
Eftirfarandi þarf að bæta við grunnskólana vegna aukins launakostnaðar umfram áætlun vegna langtímaveikinda og hækkunar rekstrartengdra liða vegna covid:
Flataskóli 25.000.000 04211-
Garðaskóli 20.000.000 04212-
Sjálandsskóli 20.000.000 04214-
Barnaskóli Hjallastefnunnar 14.000.000 04263-4364
Grunnskólar samtals 79.000.000

Frístundaheimili
Frístund Flataskóli 1.500.000 04281-
Frístund Hofsstaðaskóli 4.000.000 04283-
Frístund Álftanessskóli 2.500.000 04286-
Frístund Urriðaholtsskóli 3.000.000 04287-
Frístundaheimili önnur
(börn í sérskólum og skólum í öðrum sveitarfél.) 65.000.000 04290-9195
Frístund samtals 76.000.000

Samtals útgjaldaauki 283.000.000

Fjármögnun viðauka

Viðauka er mætt með hækkun á byggingarrétti - 283.000.000 31400-0397

Viðauki 7.

Stoðþjónusta - sólarhringsþjónusta vegna málefna fatlaðs fólks.
Vegna fjölgunar þjónustuþega og hækkunar á töxtum NPA samninga þarf að bæta við fjárhagsáætlun ársins í stoð- og stuðningsþjónustu.

Frekari liðveisla 138.000.000 02530-
Stuðningsþjónusta 8.000.000 02550-
Búsetuúrræði og sólarhringsþjónusta -27.000.000 02575-
Skammtímavistun og dagþjónusta -25.000.000 02575-4369

Sambýli Ægisgrund
Vegna fjölgunar heimilismanna
og langtímaveikinda 8.000.000 02561-

Sigurhæð
Breyting á rekstri heimilisins frá áramótum 8.000.000 02562-
skammtímavistun Móaflöt
Hækkun á launaliðum, veikindalaun
umfram þegar samþykkta áætlun. 8.000.000 02571-

Önnur þjónusta - akstur
Skólaakstur m.a. á Álftanes vegna flutnings
frístundaheimilis 5.-10. bekkur 3.000.000 02590-4114
Akstur með fatlað fólk, meiri kostnaður vegna
Covid, fáir í bílum. 9.000.000 02590-4118

Fjárhagsaðstoð
Framlag frá ríkinu -19.000.000 02110-0990
Önnur félagsleg hjálp
Niðurgreidd leikskólagjöld forgangshópar 3.000.000 02190-9175
Niðurgreidd gjöld frístundaheimila 1.000.000 02190-9176

Fjölskyldusvið - skrifstofa
Langtímaveikindi, launaliðir 18.000.000 02020-1111
Samtals útgjaldaauki 133.000.000

Fjármögnun viðauka
Endurútreikningur vegna sorphirðu -55.000.000 08210-4943
Jöfnunarsjóður málefni fatlaðs fólks -26.000.000 00100-0148
Staðgreiðsla útsvars -52.000.000 00010-0021

Samtals -133.000.000

Viðauki 8.

Breyting á framkvæmdayfirliti.
Á fundi bæjarráðs 2. mars 2021 var samþykkt umsókn Bjargs íbúafélags um stofnframlag sbr. fund bæjarráðs 23. júní 2020 vegna umsóknar félagsins um byggingu 17 almennra íbúða að Maríugötu 5 í Urriðaholti. Íbúðum var fjölgað um 5 frá fyrri samþykkt. Garðabær greiðir 12% framlag af stofnverði.

Kaup á lóðinni Maríugata 5 af Urriðaholti ehf 50.000.000

Stofnframlag Garðabæjar 110.000.000

Fjármögnun: Seldur byggingarréttur -160.000.000

Fylgiskjöl

2.4 - 2103060 - Tillaga um val á ráðgjafa teymi til að vinna að gerð rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlana fyrir þróunarsvæði A.

Bæjarstjórn samþykkir niðurstöðu matshóps um að leita samninga við ráðgjafateymi sem skipað er ráðgjöfum frá Arkþing/Nordic og Eflu verfræðistofu til að vinna að skipulagi þróunarsvæðis A og Hafnarfjarðarvegar. (Mál nr. 2103060)

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111048F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 30/11 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2112008F

04

Fundargerð umhverfisnefndar frá 7/12 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101447

05

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 29/11 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102249

06

Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 15/10 og 26/11 ´21.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2102441

07

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 26/11 ´21.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., ofanbyggðarveg

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102108

08

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 8/12 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101346

09

Fundargerð stjórnar SSH frá 6/12 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102176

10

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 1/11 ´21.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., samning Góða hirðisins um leigu á nýju húsnæði.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2105700

11

Kosning fulltrúa í bæjarráð.

Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Jónu Sæmundsdóttur, sem fulltrúa í bæjarráð í stað Gunnars Vals Gíslasonar sem beðist hefur lausnar frá setu í bæjarráði.

Málsnúmer 1911396

12

Loftlagsstefna Garðabæjar.

Jóna Sæmundsdóttir, gerði grein fyrir tillögu umhverfisnefndar um loftslagsstefnu Garðabæjar sem á að gilda fyrir stofnanir bæjarins. Með stefnunni stefnir Garðabær á að vera til fyrirmyndar í loftslagsmálum með því að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi bæjarins.

Jóna þakkaði umhverfisnefnd og starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra þátt í undirbúningi og vinnu við gerð stefnunnar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls að nýju.

Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls .

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða loftslagsstefnu Garðabæjar.

Málsnúmer 2103143

13

Samstarfssamningur um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið og tilnefning tveggja kjörinna fulltrúa í stefnuráð.

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samstarfssamning aðildarsveitarfélaga Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið og felur Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir að tilnefna Stellu Stefánsdóttur, varabæjarfulltrúa og Ingvar Arnarson bæjarfulltrúa sem fulltrúa í stefnuráð.

Málsnúmer 2009461

14

Samþykktir fyrir sameiginlegt heilbrigðiseftirlit fyrir Garðabæ, Hafnarfjörð, Kópavog, Mosfellsbæ, og Seltjarnarnes.

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samþykktir um sameiginlegt heilbrigðiseftirlit fyrir Garðabæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes.