Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 14/12 ´21.

Málsnúmer 2112013F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

18. (896). fundur

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., tilboð í byggingarrétt lóða við Kumlamýri og 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 16. tl., bréf Vegagerðarinnar varðandi yfirfærslu veghalds frá Vegagerðinni til Garðabæjar, dags. 06.12.21.

Ingvar Arnarson, ræddi 16. tl., bréf Vegagerðarinnar varðandi yfirfærslu veghalds frá Vegagerðinni til Garðabæjar og 5. tl., útboðsskilmála vegna innkaupa á þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar. Ingvar lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn vill að unnið verði eftir því sem búið er að samþykkja af bæjarstjórn þ.e.a.s. að öll vinna iðnaðarmanna fyrir Garðabæ verði boðin út. Þetta ferli hefur tekið allt of langan tíma og nauðsynlegt að klára sem allra fyrst.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., tilboð í byggingarrétt lóða við Kumlamýri, 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn og 5. tl., útboðsskilmála vegna innkaupa á þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 11. tl., drög að samkomulagi við Urriðaholt ehf. um lok uppbyggingar byggðar í Urriðaholti.

Gunnar Einarsson, ræddi 12. tl., beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.

Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.