Tillaga um nafn á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
1. (2008). fundur
Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 20. júlí 2021 var samþykkt að efna til opinnar samkeppni um nafn á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri. Alls bárust um 250 tillögur um nafn á húsinu. Dómnefnd var skipuð, Almari Guðmundsyni, Björg Fenger og Baldri Ó Svavarssyni, fulltrúum bæjarstjórnar í undirbúningsnefnd um byggingu hússins.
Almar Guðmundsson, gerði grein fyrir niðurstöðum dómnefndar og rökstuðningi um nafn fyrir nýtt fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri ásamt rökstuðningi.
Bæjarráð samþykkir niðurstöður dómnefndar og verður nafn hússins tilkynnt með frétt á vef bæjarins.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
33. fundur
Upplýst var um að bæjarráð hafi samþykkt á fundi sínum 20. júlí sl. að efna til nafnasamkeppni á nýja fjölnota íþróttahúsið í Vetrarmýri sem tekið verður í notkun í byrjun árs 2022. Stefnt er að því að auglýsa samkeppnina fljótlega.
Bæjarráð Garðabæjar
03
27. (1985). fundur
Bæjarráð samþykkir að efnt verði til opinnar samkeppni á vef Garðabæjar um nafn á fjölnota íþróttahúsinu í Vetrarmýri.