Fluguvellir 1 - Hesthús viðbygging Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2101283
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að reisa viðbyggingu við húsgafl í átt að næsta húsi.
Samkvæmt skilmálum 3.1.3. segir að byggingarreitur lóðarinnar getur orðið allt að 24 m langur sem jafngildir því að 4 metrar séu frá húsgafli að lóðarmörkum. Núverandi hús eru yfirleitt í 5 m fjarlægð frá lóðarmörkum.
Í hverfinu og í deiliskipulagi er fjarlægð milli húsgafla hvergi styttri en 8-10 metrar.
Skipulagsstjóri telur ekki æskilegt að bil á milli húsgafla verði þrengra en skipulag kveður á um og að breytingin yrði fordæmisgefandi fyrir allt hesthúsahverfið.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.