Tunguás 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu í samræmvi við 2.mgr.43.gr. og 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Engar athugasemdir bárust. Deiliskipulagsbreytingin skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
1. (879). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfi) í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við núverandi hús við Tunguás 8, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Tunguáss 4, 5, 6, 7 og 9 og Víðiáss 3 og 5 og Arnaráss 13, 15, 17 og 19. (Mál nr. 2009325)
Bæjarráð Garðabæjar
04
50. (1958). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfi) í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við núverandi hús við Tunguás 8, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Tunguáss 4, 5, 6, 7 og 9 og Víðiáss 3 og 5 og Arnaráss 13, 15, 17 og 19.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
13. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur húss stækki til norðurs.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Tunguáss 4,5,6,7 og 9 sem og Víðiáss 3 og 5 og Arnaráss 13,15,17 og 19.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
10. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um tilfærslu byggingarreits að götu að norðanverðu en frá lóðarmörkum að sunnanverðu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og að skipulagsstjóri vísi henni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu þegar að fullnægjandi gögn hafa borist.