Beint í efni

11. fundur

29.09.2020
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

11. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020

29.09.2020

Kl. 15:00 - 15:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Eysteinn Haraldsson
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2008424

01

Vesturtún 38-40 - hækkun þaks -Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vesturtúns sem nær til parhúsalóðarinnar Vesturtún 38-40. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarks mænishæð hækkar um 70 cm.

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Vesturtúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Vesturtúns nr.42, 34-36, 53a-53b, 55a-55b og 57 og Blátúns 5 og 8.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2007068

02

Suðurtún 20 - Stærri lóðarmörk - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um stækkun lóðar parhúss að Suðurtúni 20.

Svar: Skipulagsstjóri mælir ekki með því að lóðin verði stækkuð vegna nálægðar fjölbýlishúss við Hestamýri í gildandi deiliskipulagi. Samkvæmt deiliskipulagi eru fjölbýlishúsin umkringd opnum grænum svæðum og stækkun lóðarinnar myndi skerða þau á stað þar sem styst er á milli húsa á svæðinu.

Málsnúmer 2009120

03

Fyrirspurn um vegg á lóðarmörkum og geymslu - Sunnuflöt 2

Lögð fram fyrirspurn um staðsetningu smáhýsis við lóðarmörk Sunnuflatar að opnu svæði í bæjarlandi.

Skipulagsstjóri veitir samþykki fyrir hönd Garðabæjar að smáhýsið sé staðsett nær lóðarmörkum að bæjarlandi en 3 m. Vísast til greinar 2.3.5.g í gildandi byggingarreglugerð.

Skipulagsstjóri samþykkir fyrir hönd Garðabæjar 1,3 m háan hlaðinn vegg við lóðamörk að opnum svæðum vestan og sunnan lóðar.

Málsnúmer 2009555

04

Espilundur 3 - Stækkun hús um 30-40 fm. Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um stækkun húss útfyrir byggingarreits til austurs sem nemur 2 m til suðurs sem nemur 1,5. Flatarmál viðbyggingar yrði 4,5x9,5 m. Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu ef útfæra á hús með þessum hætti. Æskilegra væri ef viðbygging færi aðeins út fyrir byggingarreit í eina átt.

Málsnúmer 2009479

05

Túngata 10 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um reykháfs á þaki sem nær um 1,4 m upp yfir mænishæð. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasem við gerð reykháfs enda hafa hús innan skipulagssvæðisins verið reist með reykháfum þó ekki sé kveðið sérstaklega á um það í deiliskipulagi.

Málsnúmer 2007289

06

Sveinskotsvör 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn þar sem að bygging skýst allt að 60 cm útfyrir byggingarreit að vestanverðu. Hús númer 4 fékk samþykkt frávik vegna sambærilegrar útfærslu. 8 metrar verða því á milli húsa og þau hornrétt hvort á annað.

Skipulagstjóri gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar eins og framlögð teikning sýnir. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2009569

07

Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um hæð skjólveggja (girðinga) að landi sveitarfélagsins sem liggur að lóðinni á þrjá vegu. Að götu, göngustíg og opnu svæði. Hæð er frá 70 cm að 180 cm. Í grein 2.4. í reglum um girðingu lóða á Álftanesi segir að girðing lóða að opnum svæðum sveitarfélagsins séu heimilaðar allt að 1,5 metra háar. Í deiliskipulagsskilmálum Hólmatúns er vísað í ofangreindar reglur.

Með vísan í ofangreindar reglur og deiliskipulag Hólmatúns gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við girðingu sem er 1,5 metra há og liggur að landi sveitarfélagsins.

Málsnúmer 2009325

08

Tunguás 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Vísað til skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2009434

09

Kinnargata 20 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Tillaga lögð fram sem víkur frá deiliskipulagi hvað þakhalla varðar og geymsluskúr sem fer út fyrir byggingarreit. Vísað til umsagna deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.

Málsnúmer 2009511

10

Holtsvegur 55 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn hönnuðar um það hvort heimilað verði að íbúðir sem eru rétt rúmlega 90 m2 fái heimild til þess að vera með 2 stæði á lóð í stað þessa að vera með annað stæðið í bílageymslu. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.

Málsnúmer 2009509

11

Hraungata 25-29 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn hönnuðar um það hvort heimilað verði að snúa bílageymslu í sömu stefnu og hús og stækka byggingarreit lítillega. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.

Málsnúmer 2007070

12

Seinakur 8 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram fyrirspurn hönnuðar um það hvort þakskyggni geti náð yfir útbyggingarreit.

Svar: Ekki er kveðið sérstaklega á um þakskyggni í skiplagsskilmálum. Í Garðabæ hafa skipulagsskilmálar almennt verið túlkaðir í þá veru að þakskyggni geti náð út fyrir byggingarreit. Til þess hafa mörg hús fengið byggingarleyfi í Akrahverfi þar sem að þakskyggni hafa náð yfir ytri byggingarreit að hluta eða alfarið. Skipulagsstjóri gerir því ekki athugasemd við þá útfærslu.