Beint í efni

Hraungata 25-29 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2009509

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (874). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að bílgeymsla fjölbýlishúsanna við Hraungötu 25-29 víki lítilega frá byggingarreit. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. (Mál nr. 2009509)

Bæjarráð Garðabæjar

02

39. (1947). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að bílgeymsla fjölbýlishúsanna við Hraungötu 25-29 víki lítilega frá byggingarreit Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

10. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort heimilað verði að lega bílageymslu víki óverulega frá byggingarreit hennar. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar sem er jákvæð en mælt er með því að horn bílageymslu verði fært frá lóðarmörkum að Holtsvegi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu eins og framlögð gögn sýna en þó þannig að 1 m fjarlægð sé að lóðarmörkum við Holtsveg.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

10. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

11. fundur

Lögð fram fyrirspurn hönnuðar um það hvort heimilað verði að snúa bílageymslu í sömu stefnu og hús og stækka byggingarreit lítillega. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.