Beint í efni

39. (1947). fundur

06.10.2020
Bæjarráð Garðabæjar

39. (1947). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

06.10.2020

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2010034

01

Verkfærakista sveitarfélaga í loftslagsmálum.

Á fund bæjarráðs kom Eygerður Margrétardóttir, verkefnastjóri umhverfis- og úrgangsmála hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Eygerður kynnti verkfærakistu sveitarfélaga í loftlagsmálum en henni er ætlað að styðja íslensk sveitarfélög til að vinna aðgerðarmiðaða stefnumótun í loftslagsmálum, fylgja henni eftir og vakta árangur.

Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Gunnar Valur Gíslason, Harpa Þorsteinsdóttir og Jóna Sæmundsdóttir sátu fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-7.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-7.

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri og umhverfis og framkvæmda sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2001444

02

Covid19 - hættustig almannavarna.

Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. sunnudag en þar var upplýst um ákvörðun ríkislögreglustjóra að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnarlækni. Hertar opinberar aðgerðir tóku gildi 5. október þar sem m.a. er miðað við 20 manna fjöldatakmörkun.

Neyðarstjórn Garðabæjar kom saman í gær og fór nánar yfir einstaka þætti er snúa að starfsemi bæjarins. Í reglum er settar hafa verið koma fram takmarkanir varðandi starfsemi sundlauga og leiðbeiningar varðandi starfsemi leik- og grunnskóla.

Á bæjarskrifstofunum verður tryggt að ekki fleiri en 20 starfsmenn verði í vinnu í hverju aðgreindu hólfi. Aðrir vinna að heiman. Á neyðarstigi almannavarna er meginreglan að allir fundir í bæjarstjórn, bæjarráði og nefndum verði með fjarfundarbúnaði.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagmálastjóri fóru yfir stöðu mála á sínum sviðum.

Málsnúmer 2006130

03

Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2024).

Fjármálastjóri gerði grein fyrir innheimtu útsvars á tímabilinu janúar ? september 2020 og vinnu við gerð útkomuspár. Samkvæmt upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga má gera ráð fyrir hækkun útsvarsstofns um 1% og við áætlun ársins þarf að taka mið af samdrætti á árinu 2020. Stofn til álagningar fasteignaskatts liggur fyrir samkvæmt mati sem birt var í maí sl. og þá hafa borist fyrstu upplýsingar frá Jöfnunarsjóði um framlög á árinu 2021.

Fjármálastjóri sagði frá að þessa dagana eru að berast gögn frá forstöðumönnum um tillögur að áætlun einstakra stofnana og gera megi ráð fyrir að þau liggi öll fyrir í byrjun næstu viku. Stefnt er að því að fyrstu drög að heildaráætlun geti legið fyrir í lok þeirrar viku.

Málsnúmer 1912313

04

Yfirlit yfir endurskoðun á útgjaldajöfnunarframlögum 2020.

Lagt fram yfirlit yfir endurskoðun útgjaldajöfnunarframlaga, dags. í sept. 2020.

Málsnúmer 2010001

05

Yfirlit yfir áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2021.

Lögð fram tilkynning frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um áætluð framlög árið 2021.

Málsnúmer 2010040

06

Samkomulag um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga fyrir 2021-2025.

Bæjarstjóri kynnti nánar helstu þætti samkomulagsins.

Málsnúmer 2006641

07

Úttekt starfshóps sumarvinnu á aðgengi fyrir hreyfihamlaða á helstu stofnunum, leiksvæðum og strætóbiðstöðvum í Garðabæ.

Lögð fram og vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 og til kynningar í fjölskylduráði, íþrótta- og tómstundaráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.

Við samþykkt fjárhagsáætlunar skal gera drög að aðgerðaráætlun og forgangsröðun verkefna á grundvelli samþykktra fjárheimilda.

Málsnúmer 2009285

08

Krókamýri 46 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Margréti Ormslev Ásgeirsdóttur, kt. 101281-4269. leyfi til að byggja við núverandi hús að Krókamýri 46.

Málsnúmer 1711297

09

Suðurhraun 12a -Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Veritas Capital, kt. 530602-3380 leyfi fyrir innri breytingum núverandi húss að Suðurhrauni 12a.

Málsnúmer 2004076

10

Maríugata 26-28 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gerð ehf., kt. 530116-0180, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 16 íbúðum á lóðunum að Maríugötu 26-28.

Málsnúmer 1912201

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna endurskoðunar stíga og reiðvega í upplandi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi er nær til upplands Garðabæjar, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnum, öðrum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.

Málsnúmer 2009538

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna deiliskipulags fyrir útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnum, öðrum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.

Málsnúmer 2009434

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi vegna útgáfu á byggingarleyfi hússins að Kinnargötu 20.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að dyr bílgeymslu og aðalinngangs einbýlishússins að Kinnargötu 20 séu með þakskyggni og ekki inndregnar og þá er gert ráð fyrir að þakhalli verði 12° í stað 15°. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Umsókn um geymslu utan byggingarreits er hafnað.

Málsnúmer 2009511

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi vegna útgáfu á byggingarleyfi hússins að Holtsvegi 55.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að fjórar íbúðir sem eru 90,5 m2 að stærð í fjölbýlishúsinu að Holtsvegi 55 hafa ekki bílastæði í bílgeymslu. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2009182

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Ljósakur 6.

Lögð fram.

Málsnúmer 2009610

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðar fyrir dælustöð við Hraunsholtsbraut.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir lóð fyrir dælustöð við Hraunsholtsbraut á móts við gatnamót Drafnaráss, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Furuási 2 og Eikarási 1.

Málsnúmer 2009509

17

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi hússins að Hraungötu 25-29.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að bílgeymsla fjölbýlishúsanna við Hraungötu 25-29 víki lítilega frá byggingarreit Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2006442

18

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðar fyrir smádreifistöð.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna staðsetningar smádreifistöðvar við Maltakur.

Tillagan var grenndarkynnt og var tillögunni mótmælt af íbúum við Maltakur 1.

Málsnúmer 2009649

19

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Heiðmerkur vegna legu útivistarstígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnuvatnaskarði.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Heiðmerkur sem gerir ráð fyrir breytingu á legu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnaskarði, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun, Landsneti og Skógræktarfélagi Reykjavíkur.

Málsnúmer 2008104

20

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi útgáfu á framkvæmdaleyfi fyrir lagningu útivistarstígs frá Bessastöðum að Norðurnesvegi.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu útivistarstíg frá Bessastöðum að Norðurnesvegi . Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Bessastaði, upphaflega samþykkt 1999, sbr. auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr. 500/1999.

Málsnúmer 2009650

21

Bréf Umhverfisstofnunar varðandi áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns, dags. 29.09.20.

Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar þar sem kynnt eru áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns. Frestur til að gera athugasemdir við áformin eru til og með 4. desember 2020.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009557

22

Erindi Félags heyrnalausra varðandi stuðning vegna kynningar á táknmáli í leikskólum, dags. 27.09.20.

Bæjarráð vísar erindinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1911015

23

Opnun tilboða í byggingarrétt lóðarinnar við Eskiás 10.

Eftirfarandi tilboð bárust í byggingarrétt lóðarinnar við Eskiás 10.

AB Group ehf. 640804-2030 88.000.000

Mannverk framkvæmdir ehf. 630614-0580 110.448.000

Sérverk ehf. 571091-1279 55.000.000

M3 Eignarhald ehf. 541019-0650 115.100.000

Húsvirki hf. 581281-0139 120.500.001

Mótás hf. 580489-1259 154.000.000

FS Glaðheimar 580615-0820 88.500.007

Mosóhöllin ehf. 470303-2470 106.000.000

RT tækjaleiga ehf. 410607-0890 149.000.000

Meistarasmíð ehf. 661011-0410 75.100.000

Motown ehf. 530308-0570 131.500.000

Fasteignafélagið Pluma ehf. 691110-1090 33.000.000

Fjölhús ehf. 561198-2259 24.300.000

Með vísan til greinar 3.3. í úthlutunar og útboðsskilmála skal hæstbjóðanda Mótás hf. tilkynnt um að félagið beri að skila gögnum um fjárhagsstöðu, fjármögnun lóðar og byggingarframkvæmda. Berist fullnægjandi gögn verður tilboðið lagt að nýju fyrir bæjarráð.

Málsnúmer 2007149

24

Tilboð í byggingarrétt einbýlishúsalóðar við Brúnás 12.

Lagt fram tilboð Hilmars Snæs Rúnarssonar og Berglindar Evu Gísladóttur að fjárhæð kr. 25.000.000 án gatnagerðargjalda í lóðina við Brúnás 12.

Bæjarráð samþykkir tilboðið með fyrirvara um staðfestingu á fjármögnun og undirritun úthlutunarsamnings í samræmi við söluskilmála.