Aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða og TravAble app
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
12. fundur
Lögð er fram til kynningar úttekt á aðgengi hreyfihamlaðra að helstu stofnunum, leiksvæðum og strætóskýlum í Garðabæ, sem unnin var af sumarstarfsmönnum sumarið 2020.
Tekið er fyrir mál nr. 2006641, úttekt á aðgengi hreyfihamlaðra að helstu stofnunum, leiksvæðum og strætóskýlum í Garðabæ. Fjölskylduráð fjallaði um úttektina og hvetur til nánari skoðunar á þeim þáttum sem þarfnast úrbóta í samstarfi við tækni- og umhverfissvið og þjónustumiðstöð.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
02
4. fundur
Lögð er fram til kynningar úttekt á aðgengi hreyfihamlaðra að helstu stofnunum, leiksvæðum og strætóskýlum í Garðabæ, sem unnin var af sumarstarfsmönnum sumarið 2020.
Mál nr. 2006641 tekið til umræðu. Almenn ánægja er með framlagðar skýrslur um aðgengi að stofnunum, leiksvæðum og strætóskýlum í bæjarfélaginu. Samráðhópur um málefni fatlaðs fólks hvetur til skoðunar á þeim þáttum sem þarfnast úrbóta og bendir jafnframt á nauðsyn þess að gera heildarúttekt á aðgengismálum í bæjarfélaginu.
Bæjarráð Garðabæjar
03
39. (1947). fundur
Lögð fram og vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 og til kynningar í fjölskylduráði, íþrótta- og tómstundaráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Við samþykkt fjárhagsáætlunar skal gera drög að aðgerðaráætlun og forgangsröðun verkefna á grundvelli samþykktra fjárheimilda.