12. fundur
12. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
24.11.2021
Kl. 16:00 - 18:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Eymundur Sveinn Einarsson - varamaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Tölulegar upplýsingar um stuðnings- og stoðþjónustu
Lagt fram til kynningar fyrir fjölskylduráð. Upplýsingar um fjölda umsókna í stuðningsþjónustu og þjónustuþætti frá janúar - nóvember 2021. Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu situr fundinn undir þessum lið.
Mál nr. 1911005, lagt fram til kynningar. Starfsfólk stuðningsþjónustu svarar spurningum fjölskylduráðs.
02
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu í máli nr. 2110230 lögð fyrir fjölskylduráð til ákvörðunartöku.
Tekið er fyrir mál nr. 2110230, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
03
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu í máli nr. 2110229 lögð fyrir fjölskylduráð til ákvörðunartöku.
Tekið er fyrir mál nr. 2110229, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
04
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu í máli nr. 2110343 lögð fyrir fjölskylduráð til ákvörðunartöku.
Tekið er fyrir mál nr. 2110343, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
05
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Umsókn nr. 2110374 lögð fyrir fjölskylduráð, beiðni um styrk til greiðslu vímuefnameðferðar.
Tekið er fyrir mál nr. 2110374. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
06
Aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða og TravAble app
Lögð er fram til kynningar úttekt á aðgengi hreyfihamlaðra að helstu stofnunum, leiksvæðum og strætóskýlum í Garðabæ, sem unnin var af sumarstarfsmönnum sumarið 2020.
Tekið er fyrir mál nr. 2006641, úttekt á aðgengi hreyfihamlaðra að helstu stofnunum, leiksvæðum og strætóskýlum í Garðabæ. Fjölskylduráð fjallaði um úttektina og hvetur til nánari skoðunar á þeim þáttum sem þarfnast úrbóta í samstarfi við tækni- og umhverfissvið og þjónustumiðstöð.
07
Loftlagsstefna Garðabæjar
Drög að loftslagsstefnu Garðabæjar lögð fram til kynningar. Garðabær stefnir á að vera til fyrirmyndar í loftslagsmálum með því að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda frá starfseminni og þeim áhrifum sem losunin hefur í för með sér. Aðalmarkmið stefnunnar eru fjórþætt. Vísað er til fylgiskjala málsins.
Tekið er fyrir mál nr. 1911396, drög að loftlagsstefnu Garðabæjar lögð fram og rædd. Fjölskylduráð fagnar framlagðri stefnu og að sett séu fram skýr markmið við gerð stefnunnar.
Fylgiskjöl
08
Upplýsingabeiðni frá nefnd um rannsókn á aðbúnaði og meðferð fullorðins fatlaðs fólks og fullorðinna með geðrænan vanda
Borist hefur erindi frá forsætisráðuneytinu, þar sem óskað er eftir upplýsingum um aðbúnað og meðferð fullorðins fatlaðs fólks og fullorðinna með gerðrænan vanda.
Lagt er fram til kynningar mál nr. 2111276. Unnið verður að svari til starfshóspins fyrir 31.12.2021.