Útivistarstígur frá Vífilsstaðavatni að Grunnuvatnaskarði. Breyting á deiliskipulagi Heiðmerkur
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
12. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Heiðmerkur sem vísað var til grenndarkynningar hjá Landsneti og Umhverfisstofnun. Lögð fram erindi þeirra sem grenndarkynning nær til þar sem fram kemur að ekki eru gerðar athugasemdir við deiliskipulagsbreytinguna.
Í samræmi við 3.mgr.44.gr.skipulagslaga er tími grenndarkynningar hér með styttur.
Tillagan skoðast því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
15. (874). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Heiðmerkur sem gerir ráð fyrir breytingu á legu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun, Landsneti og Skógræktarfélagi Reykjavíkur. (Mál nr. 2009649)
Bæjarráð Garðabæjar
04
39. (1947). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Heiðmerkur sem gerir ráð fyrir breytingu á legu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnaskarði, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun, Landsneti og Skógræktarfélagi Reykjavíkur.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkurs sem gerir ráð fyrir breytingu á legu stígs frá Vífilsstaðavatni að Grunnavatnsskarði. Skipulagsnefnd metur breytinguna óverulega í samræmi við 2. mgr. 43. greinar skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal Umhverfisstofnun og Landsneti. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar ef umsagnaraðilar hafa lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna.