Holtsvegur 55 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (874). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að fjórar íbúðir sem eru 90,5 m2 að stærð í fjölbýlishúsinu að Holtsvegi 55 hafi ekki bílastæði í bílgeymslu. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. (Mál nr. 2009511)
Bæjarráð Garðabæjar
02
39. (1947). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að fjórar íbúðir sem eru 90,5 m2 að stærð í fjölbýlishúsinu að Holtsvegi 55 hafa ekki bílastæði í bílgeymslu. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og hönnuðar hvort að 4 íbúðir sem eru 90,5 m2 að stærð fái heimild fyrir því að vera með bæði bílastæði á lóð en ekki annað í bílageymslu. Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram og er hún jákvæð. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
06
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn hönnuðar um það hvort heimilað verði að íbúðir sem eru rétt rúmlega 90 m2 fái heimild til þess að vera með 2 stæði á lóð í stað þessa að vera með annað stæðið í bílageymslu. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.