Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að friðlýsingu Urriðakotshrauns.

Málsnúmer 2009650

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (2081). fundur

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir tillögu um friðlýsingu Urriðakotshraun sem fólkvangs í samræmi við 52. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Tillagan var auglýst á vegum Umhverfisstofnunar 9. febrúar 2023 og var frestur til að gera athugasemdir til og með 11. maí 2023.
Samþykkt bæjarráðs skal tilkynnt Umhverfisstofnun og umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu en heimild til friðlýsingar er hjá ráðherra samkvæmt 38. gr. laga um náttúruvernd.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Lögð fram tillaga að friðlýsingarskilmálum og uppdrætti fólkvangs í Urriðakotshrauni sem kynntur hefur verið samhliða tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til sama svæðis. Kynning tillögunnar hefur verið í höndum Umhverfisstofnunar í samræmi við lög um náttúruvernd.
Einnig lagt fram erindi Umhverfisstofnunar þar sem fram kemur ósk stofnunarinnar fyrir samþykki Garðabæjar á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og fagnar þeim merkilega áfanga að nú hefur því markmiði verið náð sem bæjarstjórn Garðabæjar hefur stefnt að frá árinu 2006 að friðlýsa Búrfellshraun frá gýg til strandar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

10 (22-26). fundur

Umhverfisstofnun, í samstarfi við Garðabæ og Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa, sem er landeigandi, hefur unnið að undirbúningi friðlýsingar Urriðakotshrauns í Garðabæ sem fólkvangs. Umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að friðlýsingu Urriðakotshrauns.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Tillaga að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs lögð fram að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum en úrvinnsla málsins er í höndum Umhverfisstofnunar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

8 (22-26). fundur

Lagt fram

Bæjarráð Garðabæjar

06

7. (2060). fundur

Lögð fram tilkynning frá Umhverfisstofnun þar sem fram kemur að tillaga að friðlýsingu Urriðakotshraun hefur verið lögð fram til kynningar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með 11. maí 2023.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

1. (916). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að friðlýsingu Urriðakotshrauns. Umhverfisstofnun hefur annast undirbúning að gerð tillögunnar í samstarfi við Garðabæ og Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa. Þá hefur við gerð tillögunnar verið haft samráð við Skógræktarfélag Reykjavíkur.
Tillaga að friðlýsingu svæðisins verður auglýst opinberlega í þrjá mánuði og öllum gefinn kostur á gera athugasemdir við framlagða tillögu. Deiliskipulag fyrir svæðið er unnið samhliða undirbúningi friðlýsingar.“ (Mál nr. 2009650)

Bæjarráð Garðabæjar

08

3. (2056). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að friðlýsingu Urriðakotshrauns. Umhverfisstofnun hefur annast undirbúning að gerð tillögunnar í samstarfi við Garðabæ og Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa. Þá hefur við gerð tillögunnar verið haft samráð við Skógræktarfélag Reykjavíkur.
Tillaga að friðlýsingu svæðisins verður auglýst opinberlega í þrjá mánuði og öllum gefinn kostur á gera athugasemdir við framlagða tillögu. Deiliskipulag fyrir svæðið er unnið samhliða undirbúningi friðlýsingar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar samþykkti tillöguna á fundi þann 11. janúar 2023.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

1. fundur

Lögð fram tillaga að skilmálum fólkvangsins í Urriðakotshrauni ásamt uppdrætti sem sýnir afmörkun fólkvangsins. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að tillagan verði auglýst á vegum Umhverfisstofnunar í samræmi við lög um náttúruvernd og samhliða tillögum að deiliskipulagi Útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum og fólkvangs í Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum ásamt tillögum að breytingum á deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar og Urriðaholts austurhluta. Vinna við undirbúning friðlýsingar hófst áður en að ákvæði í núgildandi náttúruverndarlögum um lengd auglýsinga var breytt og því skal auglýsingartími friðlýsingar vera 3 mánuðir en ekki 6 vikur. Þær skipulagsáætlanir sem búið er að samþykkja að verði auglýstar samhliða áformum um friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs hafa sama auglýsingartíma.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

10

7 (22-26). fundur

Lögð fram tillaga að skilmálum fólkvangsins í Urriðakotshrauni ásamt uppdrætti sem sýnir afmörkun fólkvangsins. Umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að tillagan verði auglýst á vegum Umhverfisstofnunar í samræmi við lög um náttúruvernd. Vinna við undirbúning friðlýsingar hófst fyrir árið 2015 þegar að núgildandi náttúruverndarlög höfðu ekki tekið gildi og því skal friðlýsingar hljóta ferli samkvæmt náttúruverndarlögum nr.44/1999. Þar sem að auglýsing friðlýsingar þarf samkvæmt þeim lögum að standa yfir í 3 mánuði þá verður tími skipulagsauglýsinga sá sami.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

11

26. fundur

Lagt fram. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við friðlýsingaráformin.

Bæjarráð Garðabæjar

12

39. (1947). fundur

Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar þar sem kynnt eru áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns. Frestur til að gera athugasemdir við áformin eru til og með 4. desember 2020.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

10. fundur

Lagt fram. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.