10 (22-26). fundur
10 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Garðabæ
15.06.2023
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
- Einar Þór Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Linda Björk Jóhannsdóttir
Dagskrá
02
Ályktun um greiðar , vistvænar og öruggar samgöngur milli höfuðborgarsvæðis og Suðurnesja
Lagt fram.
03
Friðlýsingar - Bessastaðanes
Umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að friðlýsingu Bessastaðaness.
04
Hreinsunarátak 2023
Árlegt hreinsunarátak var haldið dagana 24. apríl - 8. maí. Þrjátíu og sjö hópar fengu úthlutuð svæði til að hreinsa í nærumhverfi sínu, þar af sjö hópar á Álftanesi. Umhverfisnefnd vill koma fram þökkum til allra þeirra sem tóku þátt.
05
Áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns
Umhverfisstofnun, í samstarfi við Garðabæ og Styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa, sem er landeigandi, hefur unnið að undirbúningi friðlýsingar Urriðakotshrauns í Garðabæ sem fólkvangs. Umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að friðlýsingu Urriðakotshrauns.
08
Snyrtilegt umhverfi 2023
Umhverfisnefnd leggur til að óskað verði eftir ábendingum íbúa vegna snyrtilegra garða, snyrtilegra fyrirtækjalóða, snyrtilegra gatna ásamt ábendingum fyrir framlag til umhverfismála.