Beint í efni

Tillaga umhverfisnefndar varðandi viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2023.

Málsnúmer 2306142

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

30. (2083). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2023. Fyrirhugað er að veita viðkomandi aðilum viðurkenningar við athöfn á Garðatorgi miðvikudaginn 30. ágúst nk. kl. 17:00.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

11 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd fór í árlega garðaskoðun og mun leggja fram tillögur til samþykktar hjá bæjarstjórn um að veita viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis, snyrtilegar lóðir fyrirtækis/ opins svæði, snyrtilega götu og framlag til umhverfismála.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

10 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd leggur til að óskað verði eftir ábendingum íbúa vegna snyrtilegra garða, snyrtilegra fyrirtækjalóða, snyrtilegra gatna ásamt ábendingum fyrir framlag til umhverfismála.