Beint í efni

Smádreifistöð - Íþrótta og skólavæði - Skólabraut 6a

Málsnúmer 2006442

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

12. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

13. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulagi Íþrótta og skólasvæðis við Skólabraut sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Tillagan gerir ráð fyrir lóð og byggingarreit fyrir smádreifistöð Veitna.
Lagt fram erindi frá skólameistara Fjölbrautarskólans í Garðabæ þar sem fram kemur að skólinn geri ekki athugasemd við tillöguna.
Með vísan í 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 er tímabil grenndarkynningar hér með stytt og tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Íþrótta og skólasvæðis við Skólabraut
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

12. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags íþrótta- og skólasvæðis við Skólabraut sem gerir ráð fyrir lóð fyrir smádreifistöð Veitna. Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags og vísar til grenndarkynningarþ. Grenndarkynna skal stjórnendum Fjölbrautarskóla Garðabæjar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

15. (874). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna staðsetningar smádreifistöðvar við Maltakur.
Tillagan var grenndarkynnt og var tillögunni mótmælt af íbúum við Maltakur 1. (Mál nr. 2006442)

Bæjarráð Garðabæjar

06

39. (1947). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna staðsetningar smádreifistöðvar við Maltakur.
Tillagan var grenndarkynnt og var tillögunni mótmælt af íbúum við Maltakur 1.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir lóð fyrir dreifistöð rafveitu. Lagðar fram athugasemdir þar sem tillögunni er harðlega mótmælt.
Skipulagsnefnd hafnar tillögunni með vísan í athugasemdir.
Tækni- og umhverfissviði falið að finna aðra staðsetningu í samráði við Veitur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

7. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

09

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir lóð fyrir smádreifistöð á horni Maltakurs og Skólabrautar.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr.43.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum að Maltakri 1 og Fjölbrautarskóla Garðabæjar.