Kinnargata 20 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (874). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að dyr bílgeymslu og aðalinngangur einbýlishússins að Kinnargötu 20 séu undir þakskyggni og ekki inndregnar. Þá er gert ráð fyrir að þakhalli verði 12° í stað 15°. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umsókn um geymslu utan byggingarreits er hafnað. (Mál nr. 2009434)
Bæjarráð Garðabæjar
02
39. (1947). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að dyr bílgeymslu og aðalinngangs einbýlishússins að Kinnargötu 20 séu með þakskyggni og ekki inndregnar og þá er gert ráð fyrir að þakhalli verði 12° í stað 15°. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umsókn um geymslu utan byggingarreits er hafnað.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og hönnuðar um það hvort heimilað sé að hafa skyggni yfir dyrum bílageymslu og aðalinngangs í stað þess að þær séu inndregnar. Einnig hvort heimilað verði að þakhalli sé 12° í stað 15°. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar varðandi umrædd atriði og er hún jákvæð.
Með vísan í umsögn gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr.sömu greinar. Bent er á að þakhalli hefur áhrif á efnisval þakklæðninga.
Fyrirspurn um geymslu utan byggingarreits er svarað neikvætt með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
06
11. fundur
Tillaga lögð fram sem víkur frá deiliskipulagi hvað þakhalla varðar og geymsluskúr sem fer út fyrir byggingarreit. Vísað til umsagna deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf.