Beint í efni

Hönnun - Útboð - Stígur að Bessastöðum

Málsnúmer 2008104

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (874). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu útivistarstígs frá Bessastöðum að Norðurnesvegi. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Bessastaði, upphaflega samþykkt 1999, sbr. auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr. 500/1999. (Mál nr. 2008104)

Bæjarráð Garðabæjar

02

39. (1947). fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu útivistarstíg frá Bessastöðum að Norðurnesvegi . Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulag sem gildir fyrir Bessastaði, upphaflega samþykkt 1999, sbr. auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr. 500/1999.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

10. fundur

Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu útivistarstígs frá Bessastöðum að Norðurnesvegi. Umsókn er í samræmi við deiliskipulag.
Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfið á grundvelli framlagðra gagna í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.