Seinakur 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
13. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Akralands sem vísað var til grenndarkynningar. Lögð fram gögn þar sem eigendur eigna sem grenndarkynning náði til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir gera ekki athugasemd við tillöguna. Með vísan í 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 er tímabil grenndarkynningar hér með stytt og tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Akralands.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
12. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja á 60 % útbyggingarreits til vesturs.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Seinakurs 3, 5 6 og 10 sem og Stórakurs 5,7 og 9.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
07
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn hönnuðar um það hvort þakskyggni geti náð yfir útbyggingarreit.
Svar: Ekki er kveðið sérstaklega á um þakskyggni í skiplagsskilmálum. Í Garðabæ hafa skipulagsskilmálar almennt verið túlkaðir í þá veru að þakskyggni geti náð út fyrir byggingarreit. Til þess hafa mörg hús fengið byggingarleyfi í Akrahverfi þar sem að þakskyggni hafa náð yfir ytri byggingarreit að hluta eða alfarið. Skipulagsstjóri gerir því ekki athugasemd við þá útfærslu.
Bæjarráð Garðabæjar
08
37. (1945). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðrúnu Pétursdóttur, kt. 050295-2309, leyfi til að byggja einbýlishús að Seinakri 8.
Gunnar Valur Gíslason, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
10
10. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Seinakri 8. Samkvæmt tillögu er meira en helmingur af útbyggingarreit til vesturs byggður auk þess sem allur ytri byggingarreitur er undir þaki.Þakskyggni nær einnig út yfir bílastæði, utan byggingarreits.
Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu og leggja fyrir skipulagsnefnd.