Beint í efni

37. (1945). fundur

22.09.2020
Bæjarráð Garðabæjar

37. (1945). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

22.09.2020

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID19 - hættustig almannavarna.

Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. föstudag og fór nánar yfir helstu áherslur sem fram komu á fundinum. Þá sagði bæjarstjóri frá því að neyðarstjórn Garðabæjar hafi komið saman til fundar í gær og verið er að herða aðgerðir og aðgang að bæjarskrifstofunum. Leiðbeiningar hafa verið sendar til starfsmanna og upplýsingar til bæjarfulltrúa.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs sagði frá stöðu mála í skólunum en Leikskólinn Akrar er lokaður og ein deild á Leikskólanum Ásum vegna smita starfsmanna. Verið er að herða aðgerðir varðandi aðgengi utanaðkomandi aðila að húsnæði skólanna.

Félagsmálastjóri sagði frá takmörkunum á starfsemi eldri borgara, stöðu mála á sambýlum og öðrum þáttum starfseminnar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir dagkrárliðum 1 og 2.

Málsnúmer 2008170

02

Lausaganga katta í Garðabæ - Kynning

Á fund bæjarráð kom Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins og gerði grein fyrir framkvæmd eftirlits samkvæmt samþykkt um kattahaldi í Garðabæ. Almenn umræða var um lausagöngu bæði katta og hunda og í því sambandi rætt um skráningar, örmerkingar, kvartanir frá íbúum og fræðslu til dýraeigenda.

Málsnúmer 2007120

03

Andvaravellir 2A - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Kristinssyni, kt. 150953-3409, leyfi til að byggja hesthús að Andvaravöllum 2A.

Málsnúmer 2006486

04

Kinnargata 39 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Maríu Kristínu Jóhannsdóttur, kt. 110553-5449, leyfi til að byggja parhús að Kinnargötu 39.

Málsnúmer 2006487

05

Kinnargata 41 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gústaf Antoni Ingasyni, kt. 180178-5469 leyfi til að byggja parhús að Kinnargötu 41.

Málsnúmer 2008581

06

Litlabæjarvör 18 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Margréti Elsu Sigurðardóttur, kt. 080966-3349, leyfi til að byggja einbýlishús að Litlabæjarvör 18.

Málsnúmer 2008212

07

Miðskógar 7 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðjóni Ágústi Sigurðssyni, kt. 150854-4749, leyfi til að byggja við núverandi einbýlishús.

Málsnúmer 2006012

08

Reynilundur 11 - Tilkynningarskyld framkvæmd.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um móttöku tilkynningar Margrétar Ragnarsdóttur, kt. 100683-5399 um framkvæmdir við stækkun bílskúrs sem teljast undanþegnar byggingarleyfi, sbr. grein 2.3.5. í byggingarreglugerð Um er að ræða viðbyggingu sem er innan byggingarreits, minni en 40 fm og á einni hæð, sbr. h-liður ofangreindrar greinar. Fyrir liggur greinargerð hönnuðar samkvæmt ákvæðinu.

Málsnúmer 2007070

09

Seinakur 8 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðrúnu Pétursdóttur, kt. 050295-2309, leyfi til að byggja einbýlishús að Seinakri 8.

Gunnar Valur Gíslason, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2007390

10

Seinakur 10 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Andra Þór Jónssyni, kt. 150980-3999, leyfi til að byggja einbýlishús að Seinakri 10.

Málsnúmer 2003362

11

Upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi minnkandi starfshlutfall og atvinnuleysi.

Lagðar fram upplýsingar varðandi þróun minnkandi starfshlutfalls og atvinnuleysis á tímabilinu maí - september. Rætt um að leita eftir nánari upplýsingum eftir atvinnugreinum og aldri varðandi atvinnuleysi í Garðabæ.

Málsnúmer 2009377

12

Tilkynning frá Reykjavíkurborg varðandi kynningu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur - sérstök búsetuúrræði.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2009376

13

Tilkynning frá Reykjavíkurborg varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur - Nýi Skerjafjörður.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2009375

14

Tilkynning frá Reykjavíkurborg varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur - stefna um íbúðarbyggð - stakir reytir.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2009225

15

Tilkynning frá Umhverfisstofnun varðandi tillögu að starfsleyfi fyrir Gas- og jarðgerðarstöð Sorpu bs., dags. 04.09.20.

Málsnúmer 2009223

16

Áskorun Sambands íslenskra handverksbruggara til dómsmálaráðherra.

Lögð fram áskorun Sambands íslenskra handverksbruggara þar sem skorað er á dómsmálaráðherra að leggja fram frumvarp um netverslun með áfengi á nýjan leik og tryggja handverksbrugghúsum rétt til að selja gestum sínum vörur á staðnum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009395

17

Bréf Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu varðandi styrk fyrir Samveru og súpu.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

Fylgiskjöl