Beint í efni

Bréf Magnúsar Kristinssonar varðandi álagningu byggingarréttargjalds af hesthúsalóð við Andvaravelli 2A, ódags.

Málsnúmer 2007120

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

49. (1957). fundur

Í bréfinu er farið fram á lækkun á gatnagerðargjöldum og byggingarréttargjaldi vegna úthlutunar á hesthúsalóð við Andvaravelli 2A.

Bæjarráð hefur ekki heimild til að lækka lögbundinn gjöld eins og gatnagerðargjöld. Álagning byggingarréttargjalds byggir á samþykkt bæjarráðs frá fundi 25. september 2018 þar sem fram kemur að álagning gjaldsins skuli nema sömu fjárhæð og gatnagerðargjald.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða málið nánar og ræða við bréfritara.

Bæjarráð Garðabæjar

02

37. (1945). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Kristinssyni, kt. 150953-3409, leyfi til að byggja hesthús að Andvaravöllum 2A.