Beint í efni

Vesturtún 38-40 - hækkun þaks -Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2008424

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis á Álftanesi er gerir ráð fyrir hækkun á mænishæð parhúsanna við Vesturtún 38-40. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2008424)

Bæjarráð Garðabæjar

02

2. (1960). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis er gerir ráð fyrir hækkun á mænishæð parhúsanna við Vesturtún 38-40. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Vesturtúns sem nær til parhúsalóðarinnar Vesturtún 38-40. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarks mænishæð hækkar um 70 cm. Skipulagsstjóri vísaði tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 44. gr. sömu laga. Engar athugasemdir hafa borist. Tillagan skoðast því samþykkt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

10. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vesturtúns sem nær til parhúsalóðarinnar Vesturtún 38-40. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarks mænishæð hækkar um 70 cm.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Vesturtúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Vesturtúns nr.42, 34-36, 53a-53b, 55a-55b og 57 og Blátúns 5 og 8.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

9. fundur

Lögð fram fyrirspurn eigenda parhússins Vesturtún 38-40 um gerð rishæðar. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.