Beint í efni

Hólmatún 56 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2009569

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu girðinga á lóðarmörkun. Tækni- og uhverfissvið hefur mælst til þess að skjólgirðingar taki mið af reglum um girðingar á Álftanesi eins og deiliskipulag kveður á um.
Í grein 2.6. í þeim reglum segir að byggingarfulltrúa sé heimilt að leyfa hærri skjólgirðingar ef þörf krefur til skjólmyndunar. Málinu vísað til byggingarfulltrúa sem kalla skal eftir sjónarmiðum nágranna.
Tækni- og umhverfissviði falið að móta tillögu að viðmiðunarreglum fyrir girðingar og skjólveggi í Garðabæ.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

12. fundur

Lagður fram tölvupóstur frá eigendum Hólmatúns 56 sem lýsa sig ósátta við þau skilaboð frá skipulagsstjóra að þeim beri að reisa girðingar samkvæmt deiliskipulagi og reglum um girðingar á Álftanesi.
Eigendur tína til ýmis dæmi um skjólveggi og girðingar á Álftanesi þar sem hafa verið reistar og eru ekki í samræmi við skipulag.
Vísað til umræðu í skipulagsnefnd.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

10. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

11. fundur

Lögð fram fyrirspurn um hæð skjólveggja (girðinga) að landi sveitarfélagsins sem liggur að lóðinni á þrjá vegu. Að götu, göngustíg og opnu svæði. Hæð er frá 70 cm að 180 cm. Í grein 2.4. í reglum um girðingu lóða á Álftanesi segir að girðing lóða að opnum svæðum sveitarfélagsins séu heimilaðar allt að 1,5 metra háar. Í deiliskipulagsskilmálum Hólmatúns er vísað í ofangreindar reglur.
Með vísan í ofangreindar reglur og deiliskipulag Hólmatúns gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við girðingu sem er 1,5 metra há og liggur að landi sveitarfélagsins.