Beint í efni

Blikanes 22 - fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2108232

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

17. (895). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22 sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðaustur. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. laganna og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2108232)

Gunnar Einarsson, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

02

46. (2004). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22 sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðaustur. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. laganna og bárust engar athugasemdir.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

14. fundur

Grenndarkynningu lýkur 10. nóv 2021

Lögð fram tillaga að að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinar Blikanes 22 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit á suðausturhluta hússins.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Arnarness.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

11. (889). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um viðbyggingu utan byggingarreits á lóðinni við Blikanes 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Blikaness 19, 20, 21, 23, og 24 og Tjaldaness 17. (Mál nr. 2108232)

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri vék sæti við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

05

32 (1990). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um viðbyggingu utan byggingarreits á lóðinni við Blikanes 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Blikaness 19, 20, 21, 23, og 24 og Tjaldaness 17.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við suð-austurhlið hússins Blikanes 22.
Skipulagsnefnd mælir með því að ákvæði verði bætt við tillöguna sem gerir ráð fyrir því að gluggar á suð-austurhlið efri hæðar verði í 1,8 m hæð yfir gólfi íverurýma.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/23010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Blikaness 19, 20,21,23 og 24 sem og Tjaldaness 17.