Opnun tilboða í vetrarþjónustu gatna í Garðabæ 2021-2024.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
38. (1996). fundur
Lögð fram eftirfarandi tilboð sem bárust í vetrarþjónustu gatna í Garðabæ.
Ó.K. gröfur ehf. kr. 73.800.000
Bjartey ehf. kr. 59.616.000
Kostnaðaráætlun kr. 75.900.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Bjarteyjar ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
02
32 (1990). fundur
Tilboð sem bárust í verkið „Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2021-2024“ voru lögð fram á fundi bæjarráðs 24. ágúst sl.
Bjartey ehf. kr. 64.627.200
Malbikunarstöðin Höfði hf. kr. 225.048.000
Kostnaðaráætlun kr. 75.900.000
Tilboðin hafa verið yfirfarin og uppfyllir tilboð lægstbjóðanda Bjargeyjar ehf. ekki skilmála útboðsins m.a. um ákvæði skilmála um jákvætt eigið fé. Tilboð Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. er langt umfram kostnaðaráætlun og telst óásættanlegt.
Bæjarráð hafnar framkomnum tilboðum og samþykkir að bjóða verkið út að nýju.
Bæjarráð Garðabæjar
03
31 (1989). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í verkið „Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2021-2024“.
Bjartey ehf. kr. 64.627.200
Malbikunarstöðin Höfði hf. kr. 225.048.000
Kostnaðaráætlun kr. 75.900.000
Afgreiðslu frestað meðan tilboð eru yfirfarin nánar.