Tillaga Garðabæjarlistans um systkina- og fjölgreinaafslátt.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. (889). fundur
Ingvar Arnarson, lagði fram og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu Garðabæjarlistans um systkina- og fjölgreinaafslátt.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að þegar að samið er um stuðning við félög í bæjarfélaginu sem bjóða upp á skipulagt íþrótta- og tómstundastarf verði tryggt að félögin bjóði systkina- og fjölgreinaafslátt."
Greinargerð.
Með systkina- og fjölgreinaafslætti er stigið mikilvægt skref í að minnka útgjöld barnafjölskyldna í bæjarfélaginu og er það í takt við fjölskylduvænar áherslur. Ávinningur af slíku felur auk þess í sér að tryggja að öll börn hafi sem jafnastan aðgang að íþrótta- og tómstundaiðkun ásamt því að fá aukin tækifæri til þess að prófa fleiri greinar.
Í samanburði við nágrannasveitarfélögin þá er Garðabær eftirbátur nágrannasveitarfélaga hvað varðar systkinaafslætti og jafnframt eru æfingagjöld í hærra lagi. það er því ljóst að með þessari breytingu myndi létta á útgjöldum barnafjölskyldna. Útfærsla systkinaafsláttar eru með ýmsu móti, í nágrannasveitarfélögum er afsláttur á bilinu 10-15%, útfærður á mismunandi vegu og því mikilvægt að koma á samræmi á milli íþróttafélaga innan sveitarfélagsins.
Gunnar Einarsson, tók til máls og lagði til að tillögunni verði vísað til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Kjartan Örn Sigurðsson, tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.