Opnun tilboða í eftirlit með gatnagerð í Kumlamýri.
Málsnúmer 2103425
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
13. (1971). fundur
Eftirfarandi tilboð barst í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Kumlamýri.
Hnit verkfræðistofa hf. kr. 13.485.000
Kostnaðaráætlun kr. 16.711.250
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Hnit verkfræðistofu hf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.