Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 5-7.

Málsnúmer 2012153

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

13. (1971). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðanna við Maríugötu 5-7.

Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipuags Urriðaholts Austurhluta að lokinni auglýsingu í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og 1.mgr.43.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 5-7, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir skiptingu lóðanna og fjölgun íbúða um 8 á hvorri lóð.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 895.650 á íbúð m.v. BVT 747,7 stig í desember 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi. (Mál nr. 2012153)

Bæjarráð Garðabæjar

04

50. (1958). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 5-7, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir skiptingu lóðanna og fjölgun íbúða um 8 á hvorri lóð.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 895.650 á íbúð m.v. BVT 747,7 stig í desember 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

13. fundur

Lögð fram tillaga sem lóðarhafi hefur óskað eftir um breytingar á fjölbýlishúsalóðinni.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi:
Að lóðinni og byggingarreit verði skipt í tvennt. Um er að ræða húsagerð F6, alls 34 íbúðir í gildandi deiliskipulagi.
Að íbúðum verði fjölgað um 8 íbúðir á hvorri lóð eftir skiptingu. Íbúðum fjölgar því alls úr 34 í 42.
Að inndreginn byggingarreitur þakhæðar breytist. Í stað kröfu um inndregna þakhæð um 1,5 m frá undirliggjandi hæð er gerð krafa um að þakhæð sé inndregin um 5 metra frá undirliggjandi hæð á göflum.
Heimilt verði að telja svalir til uppbrots sé að lágmarki önnur skammhlið klædd með samfelldum lokuðum fleti með málm eða viðarklæðningu.
Að byggingarreitir bílgeymslu eru sameinaðir og verða eftir breytingu á lóð Maríugötu 7.
Bílastæðum á lóð fjölgar um eitt stæði.
Ekki er óskað eftir auknu heildarbyggingamagni eða breytingu á hæð húsa.
Fyrirhugað er að ráðstafa annarri lóðinni til byggingarfélagsins Bjargs og hinni til byggingarsamvinnufélagsins Búseta.
Lögð fram umsögn skipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd tekur undir eftirfarandi álit deiliskipulagshöfundar:
"Ekki er lagst gegn uppskiptingu lóðar né fjölgun íbúða á lóð eða breyttri samsetningu íbúðastærða. Í kafla 3.5 í deiliskipulagsskilmálum er lögð áhersla á að skapa aðstæður fyrir ólíka þjóðfélagshópa; einstaklinga og fjölskyldur, unga og aldna með dreifðu framboði ólíkra íbúða, fjölbýlishúsa með hátt hlutfall minni íbúða og með byggingu hagkvæmra leiguíbúða.
Lóðin Maríugata 5-7 hentar vel til byggingu slíkra íbúða.
Uppbrot húss með svölum þar sem a.m.k. önnur skammhlið svala er klædd samræmist því markmiðið deiliskipulagsins að brjóta upp langa samfellda veggfleti í smærri fleti húsa. Ekki er lagst gegn því að falla frá kröfu um að þakhæð sé inndregin að framan þar sem þakhæð er inndregin um 5 metra á göflum."

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem að allar forsendur liggja fyrir í aðalskipulagi er fallið frá forkynningu tillögunnar sbr. 3. mgr. 40. gr. sömu laga.