Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi um uppbyggingu og skipulag Setbergslands.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Lagt fram erindi Byggingarfélags Gylfa og Gunnars varðandi uppbyggingu og breytingar á skipulagi Setbergslands vestan Urriðakotsvatns.
Skipulagsnefnd telur ekki tímabært að fara að huga að breytingum á skipulagi svæðisins að svo stöddu þar sem að önnur verkefni eru í forgangi í skipulagi og uppbyggingu. Má þar nefna síðustu áfanga Urriðaholts, Hnoðraholt og Vetrarmýri, Miðsvæði Álftaness, Lyngássvæði og svæði umhverfis Hafnarfjarðarveg.
Í grein 3.1.5. í Aðalskipulagi Garðabæjar er gerð grein fyrir þeirri áfangaröð sem Garðabær hyggst vinna eftir í uppbyggingu og á hvaða svæði megináhersla verður lögð sem eru framangreind svæði. Auk þess er enn óljóst með hvaða hætti stofnbrautir á svæðinu verða útfærðar sem kallar á samráð við Hafnarfjarðarbæ, SSH og Vegagerðina.
Bæjarráð Garðabæjar
05
5. (1963). fundur
Í erindinu er leitað til bæjaryfirvalda um að hafinn verði undirbúningur að breytingum á skipulagi Setbergsholts m.t.t. landnotkunar, þéttleika byggðar og gatnakerfis en landsvæðið er í eigu erindishafa.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.