Beint í efni

Keldugata 2, dsk br Urr.vesturhluti

Málsnúmer 2010441

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (881). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar að Keldugötu 2, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og tillöguna með breytingu frá auglýstri tillögu er varðar innkeyrslu lóðarinnar.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær. (Mál nr. 2010441)

Bæjarráð Garðabæjar

02

6. (1964). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar að Keldugötu 2 samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og tillöguna með breytingu frá auglýstri tillögu er varðar innkeyrslu lóðarinnar.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags að lokinni auglýsingu. Athugsemdir sem borist hafa lagðar fram. Lögð fram greinargerð deiliskipulagshöfundar þar sem tillögur að svörum við athugasemdum eru settar fram.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna með breytingu á innkeyrslu lóðarinnar í samræmi við niðurstöðu greinargerðar sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Svör sem fram koma í greinargerð samþykkt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

1. fundur

Lögð fram tillaga að breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluti að lokinni auglýsingu í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

17. (876). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Keldugötu 2-4 sem gerir ráð fyrir að lóðirnar sameinist í eina lóð."

Bæjarráð Garðabæjar

06

45. (1953). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Keldugötu 2-4 sem gerir ráð fyrir að lóðirnar sameinist í eina lóða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

12. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að lóðirnar Keldugata 2 og Keldugata 4 sameinist í eina lóð með einum byggingarreit sem verður eins og nú er að Keldugötu 2. Heildarfjöldi íbúða yrði sá sami eða 9 íbúðir en nú í einu húsi.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar sem er jákvæð.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni í auglýsingu í samræmi við 1.mgr.41.greinar Skipulagslaga. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús og athygli vakin á auglýsingunni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

11. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að lóðirnar Keldugata 2 og Keldugata 4 sameinist í eina lóð með einum byggingarreit sem verður eins og nú er að Keldugötu 2. Heildarfjöldi íbúða yrði sá sami eða 9 íbúðir en nú í einu húsi.
Vísað til umsagnar hjá skipulagshöfundi og Urriðaholti ehf.