Samningur við Terra einingar ehf. um lausar kennslustofur við Garðaskóla og Urriðaholtsskóla.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
16. (2069). fundur
Bæjarráð staðfestir leigusamning við Terra einingar ehf. um leigu á lausum kennslustofum fyrir Garðaskóla og Urriðaholtsskóla á grundvelli tilboðs sem lagt var fram á fundi bæjarráðs 4. apríl 2023.
Bæjarráð Garðabæjar
02
14. (2067). fundur
Verðkönnun vegna leigu eða kaupa á færanlegum húseiningum fyrir lausar kennslustofur við Garðaskóla og Urriðaholtsskóla var send til sex aðila.
Aðeins eitt tilboð barst frá Terra einingum ehf.
Garðaskóli
Kaupverð 138.221.337 kr. án vsk.
Leiguverð pr. mánuð 2.275.765 kr. án vsk vísitölutryggt leiguverð í 12 mánuði 27.309.180 kaupverð 134.712.406 kr. = 162.021.586 Kr.
Urriðaholtsskóli
Kaupverð 207.855.493 kr. án vsk.
Leiguverð pr. mánuð 3.422.267 kr. án vsk vísitölutryggt leiguverð í 12 mánuði 41.067.204 kaupverð 202.578.807 kr. = 243.646.011 Kr.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Terra einingar ehf. um pöntun á lausum kennslustofum fyrir Garðaskóla og Urriðaholtsskóla á grundvelli ofangreinds tilboðs. Samningurinn skal lagður fram til staðfestingar í bæjarráði.